fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þetta gerist í líkamanum þegar þú borðar hunang

Pressan
Laugardaginn 5. október 2024 16:30

Hunang er algjört töfraefni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við mannfólkið erum alltaf að leita að hinni fullkomnu fæðu sem getur eins og einhver töfrapilla haldið líkamanum í formi en um leið á hún að bragðast vel.

Það er engin þörf á að búa til einhverja töfrapillu því það er hægt að sækja mikla hollustu í ríki náttúrunnar og er hunang gott dæmi um það.

Vitað er að hunang hefur margvísleg góð áhrif á líkamann en það eru ekki allir sem vita hver þessi áhrif eru.

Hér nefnum við nokkur dæmi um góð áhrif hunangs til sögunnar.

Hunang er gott fyrir húðina. Það inniheldur andoxunarefni, vítamín og prótín sem geta hreinsað óæskileg efni úr líkamanum og um leið húðina.

Ef þú burðast með nokkur aukakíló þá hefur þú eflaust fengið þau ráð að draga úr sykurneyslu. Hunang er gott sætuefni og vel hægt að nota það í staðinn fyrir sykur. Það heldur blóðsykrinum í jafnvægi og getur hjálpað þér að léttast því það inniheldur B6 vítamín, járn, kalsíum, natríum, sink, kalíum og fosfór, steinefni og vítamín sem eru þekkt fyrir að hraða efnaskiptum.

Það er ekkert kólesteról í hunangi.  Þvert á móti geta steinefnin og vítamínin í því hjálpað til við að minnka magn „slæms“ kólesteróls að því er BBC segir og vísar í rannsókn vísindamanna við University of Illinois.

Rannsóknir hafa sýnt að andoxunarefnin, sem eru í hunangi, geta komið í veg fyrir æðakölkun og þar með unnið gegn hjartasjúkdómum.

Heilinn elskar hunang því það bætir minnið. Það hjálpar líkamanum einnig við að vinna úr kalsíum sem aftur hefur góð áhrif á heilann.

Ef þú átt erfitt með svefn þá getur hunang hjálpað þér. Eins og sykur þá eykur hunang magn insúlíns í líkamanum sem aftur leysir serótónín úr læðingi en það er efni sem bætir skapið og orsakar vellíðunartilfinningu. Líkaminn breytir serótóníni í melatónín sem bætir svefngæðin og kemur reglu á lengd hans að sögn Rene Ficek, sérfræðings við Seattle Sutton Healthy Eatin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér