

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, baráttukona gegn kynbundnu ofbeldi, slær á létta strengi með alvarlegum undirtón og kemur með beitt myndband um fjölmiðlamanninn Frosta Logason.
Edda Pétursdóttir steig nýlega fram og lýsti andlegu ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu fyrrverandi kærasta. Hann tók af henni kynferðisleg myndbönd, án leyfis og hennar vitneskju, og hótaði ítrekað að birta þau. Edda nafngreindi ekki ofbeldismann sinn en Frosti steig fram kvöldið sem viðtalið kom út og gekkst við ásökunum hennar.
Sjá einnig: Edda lifði í stöðugum ótta í tæpan áratug
Eftir að Frosti gekkst við því að vera maðurinn sem Edda talaði um er hann kominn í ótímabundið leyfi frá störfum sínum á Stöð 2 og stjórnarstörfum hjá SÁÁ, auk þess sem hann hætti í stjórn Blaðamannafélags Íslands að ósk annarra stjórnarmeðlima.
Sjá einnig: Frosti stígur fram og biðst afsökunar á hegðun sinni
Þórdís Elva birti „skets“ á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hún þykist vera þjónustufulltrúi að svara í hjálparsíma, eða „krísulínunni Sjomlar.“
Í myndbandinu tekur hún við símtali frá „Fróða“ en augljóst er að vísun í mál Frosta er að ræða. „Vandamálið er að þú beittir kærustuna þína andlegu ofbeldi og hótaðir að brjóta á henni kynferðislega, sem hélt henni í andlegri gíslingu árum saman og nú er hún búin að segja frá því opinberlega, ég skil,“ segir Þórdís og spyr hver viðbrögð hans hefðu verið.
Myndbandið hefur slegið í gegn hjá netverjum, yfir 1300 manns hafa líkað við það og yfir 660 manns hafa deilt því áfram.
Horfðu á það hér að neðan.