fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Nágrannarnir á Flókagötu komnir með upp í kok – Ruslið loksins tekið en í staðinn kom bara meira drasl

Erla Hlynsdóttir
Þriðjudaginn 15. mars 2022 14:43

Á lóð Flókagötu 5 í morgun. Mynd/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur vannst ekki tími til þess á föstudag að skoða mál þar sem rusl hafði safnast upp á lóð við Flókagötu 5. Heilbrigðisfulltrúi segir í svari til DV að málið hafi verið kannað í gærmorgun og þá hafi allir pokar verið farnir.

DV sagði frá málinu á föstudag en þar kom fram að hvers kyns rusl og úrgangur hefði endurtekið safnast upp við húsið síðustu misseri. Þá hafi nágrannar kvartað endurtekið til heilbrigðiseftirlitsins, til Reykjavíkurborgar og til lögreglunnar án þess að það bæri árangur.

Sjá einnig: Rottur og mávar sækja í rusl sem safnast endurtekið upp við gistiheimili við Flókagötu – „Hryllingur“

Frá því á föstudag þegar búið var að safna ruslinu saman í stærri poka og setja út á stétt. Mynd/Facebook

Nú er síðan aftur komið rusl á lóðina, í þetta skiptið er til dæmis um að ræða gamlan sófa, spýtnabrak og gamlan stól.

Á lóð Flókagötu 5 í morgun. Mynd/DV
Á lóð Flókagötu 5 í morgun. Mynd/DV
Á lóð Flókagötu 5 í morgun. Mynd/DV
Á lóð Flókagötu 5 í morgun. Mynd/DV

Þá kom fram að á föstudag hafi ruslapokar verið um alla lóð en síðan hafi einhver safnað þeim saman í stærri poka og sett út á stétt.

Í Facebookhópi íbúa í Norðurmýri sögðu margir að þetta kæmi ítrekað fyrir á þessari lóð og einn nágranninn hafði séð bæði rottur og máva sem sæktu í matarleifar í ruslinu.

Mynd af rusli á lóð Flókagötu 5 tekin haustið 2020. Aðsend mynd.

DV spurði fulltrúa heilbrigðiseftirlits borgarinnar hvað hafi verið gert í málinu og hvort sektum hafi verið beitt. Í fyrri frétt DV var talað um að þarna væri rekið gistiheimili, og er húsnæðið skráð sem slíkt hjá Þjóðskrá, en samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðiseftirlitinu er þar ekki lengur gistiheimili heldur sé húsið allt í útleigu.

„Heilbrigðiseftirlitið getur beitt dagsektum ef ekki er farið að kröfum þess. Heilbrigðiseftirlitinu ber ávallt að beita vægasta úrræði hverju sinni og vægasta úrræði er að gera kröfur um úrbætur og veita hæfilegan frest til að verða við kröfunni. Sé kröfunni ekki  sinnt er hún ítrekuð og aftur veittur frestur. Þannig  getur liðið langur tími frá fyrstu kröfum þar til mál kemst á það stig að beiting dagsekta komi til álita,“ segir ennfremur í svari heilbrigðiseftirlitsins.

Rottur og mávar sækja í rusl sem safnast endurtekið upp við gistiheimili á Flókagötu – „Hryllingur“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum
Fréttir
Í gær

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans
Fréttir
Í gær

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi
Fréttir
Í gær

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta