Lögreglan telur að foreldrarnir hafi ákveðið að hætta að gefa Elizabeth lyfin sín og biðja fyrir henni þess í stað og treysta á mátt almættisins til að lækna hana. Courier Mail skýrir frá þessu og segir að Jason Struhs, 50 ára, og Kerri Struhs, 46 ára, hafi verið handtekin og kærð fyrir morð, pyntingar og að hafa ekki veitt lífsbjargandi aðstoð.
Foreldrarnir starfræktu kirkju á heimili sínu í Toowoomba og eru sögð hafa trúað á mátt guðs til að lækna sjúkdóma frekar en lyf. Þau eru sögð hafa talið að Elizabeth væri með „orma“ og að guð hefði „100% lofað lækningu.“