Stefnumót kvennanna með Tom byrjuðu annars ágætlega en enduðu með hræðilegri martröð. Hann fann fórnarlömb sín í gegnum stefnumótaforritið Tinder.
Fyrir dómi kom fram að hann hafi sett sig í samband við minnst fimm konur á Tinder og síðan nauðgað þeim á stefnumótum.
Dómarinn dæmdi hann í 12 ára fangelsi hið minnsta.
Tom, sem var sjóliði í breska flotanum, blekkti konur sem voru í leit að varanlegu ástarsambandi en þess í stað nauðgaði hann þeim og beitti öðru ofbeldi. Daily Mail segir að hann hafi ráðist á sumar konurnar á meðan þær sváfu.
Fyrir dómi kom fram að hann hafði áður verið sakaður um nauðganir en hafi aldrei verið dæmdur en nú varð breyting þar á.
Ung kona, sem hann nauðgaði 2017, sagði að á fyrsta stefnumóti þeirra hafi hann hent getnaðarvarnarpillum hennar í ruslið. Á næsta hafi þau hist í íbúð og pantað sér mat og síðan hafi Tom stungið upp á að þau stunduðu kynlíf. Hún féllst á það en síðan fór allt úrskeiðis. Tom fór skyndilega að lemja hana. Hún reyndi að stöðva hann en gat það ekki. „Það er ekkert sem þú getur gert. Ég er sterkari en þú,“ sagði hann við hana og hélt áfram að nauðga henni næstu 30 mínúturnar.
Eftir nauðgunina hélt hann áfram að senda konunni skilaboð og skrifaði meðal annars: „Hvenær má ég nauðga þér aftur?“ skrifaði hann á WhatsApp.