fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Hrottalegt morðmál skekur Svíþjóð – Stjórnmálamaður handtekinn – Grunaður um að hafa sundurhlutað líkið

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 22. nóvember 2021 07:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrottalegt morðmál skekur nú Svíþjóð og kalla Svíar nú ekki allt ömmu sína þegar kemur að morðum sem eru ansi algeng þar í landi. Málið snýst um morð á karlmanni um sextugt en hlutar af líki hans fundust á þremur stöðum í miðborg Stokkhólms í haust. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins en hann er félagi í Svíþjóðardemókrötunum og sveitarstjórnarmaður í Nyköping.

Sænska ríkisútvarpið og Aftonbladet skýra frá þessu. Sá handtekni neitar sök. Lögreglan telur að fórnarlambið hafi verið myrt á milli 8. og 16. september. Fyrsti líkamshlutinn fannst í september þegar kafari fann höfuð í ruslapoka í síki í Stokkhólmi.

Í október fundust fleiri líkamshlutar í tösku við Junibacken í Djurgården en það er skemmtihús þar sem barnabókmenntir eru hafðar í hávegum, aðallega sögur Astrid Lindgren. Ekki hefur verið skýrt frá hvar þriðji fundurinn var gerður. Í öllum tilfellum voru það almennir borgarar sem fundu líkamshlutana.

Svíþjóðardemókratarnir hafa „fryst“ aðild hins grunaða að flokknum vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife