fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Eyjan

Skipting ráðuneyta er næsta verkefni formanna stjórnarflokkanna

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. nóvember 2021 08:00

Frá undirritun ríkisstjórnarsáttmálans 2017.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það líður að því að stjórnarmyndunarviðræðunum ljúki og ný ríkisstjórn taki til starfa. Næsta verkefni formanna flokkanna þriggja er að skipta ráðuneytum á milli þeirra. Ekki er gert ráð fyrir að miklar breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Segir blaðið að forystumenn flokkanna hafa sagt í sínum hópi að stjórnarmyndunin sé „að smella saman“. Að öðru leyti hafa þeir ekki farið neitt út í smáatriði um viðræðurnar eða hvernig væntanlegur stjórnarsáttmáli mun líta út.

Hefur blaðið eftir stjórnarþingmanni að ekki þurfi að búast við stórkostlegum pólitískum tíðindum í sáttmálanum. Meginverkefnið verið að koma landinu klakklaust út úr heimsfaraldrinum, byggja efnahagslífið upp og koma lagi á ríkisfjármálin.

Skammur tími er til stefnu til að ljúka stjórnarmyndunarviðræðunum því kalla þarf Alþingi saman í síðasta lagi 4. desember samkvæmt lögum en þá er sá tími liðinn sem má líða frá kosningum þar til þing er kallað saman. Þá er hefð fyrir að fjármálaráðherra leggi fjárlagafrumvarpið fram á þingsetningardegi og stjórnarflokkarnir þurfa að ná saman um skipan í nefndir þingsins en það þarf að einhverju leyti að gerast í samvinnu við stjórnarandstöðuna.

Þá er talið mikilvægt að málin hafi skýrst hvað varðar framkvæmd kosninganna í Norðvesturkjördæmi svo ekki leiki vafi á hvernig þingið verður skipað á næsta kjörtímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi