
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, vélaverkfræðingur og áhrifavaldur, var í þriggja ára sambandi sem hún lýsir sem sjúkri ást. Hann kom illa fram við hana, talaði niður til hennar og skrifaði allt niður sem hann taldi hana hafa gert rangt. Hún var byrjuð að fá kvíðaköst vegna sambandsins en tókst að slíta því í júlí 2018. Hún opnar sig um sambandið í forsíðuviðtali nýjasta tölublaðs Vikunnar.
Katrín Edda er 32 ára og býr í Stuttgart í Þýskalandi þar sem hún vinnur hjá Bosch, en hún er með BSc. í vélaverkfræði og MSc. í orkuverkfræði. Margir muna eftir henni úr fitnessheiminum, en hún átti góðu gengi að fagna í þeim bransa fyrir nokkrum árum. Þá reis frægðarsól hennar hátt árið 2016 þegar hún vakti mikla athygli á Snapchat. Síðan þá hefur hún skipað sér sess sem einn vinsælasti áhrifavaldur Íslands og er í dag með um 25 þúsund fylgjendur á Instagram.
Katrín Edda segir að í upphafi hefði fyrrverandi kærasti hennar sveipað hana með rómantík, gjöfum og fallegum orðum. Maðurinn var franskur vinnufélagi hennar og flutti fljótlega inn til hennar sem hún segir að hefðu verið mikil mistök. Þá fór hún að taka eftir hlutum sem voru ekki eðlilegir, eins og hvernig hann talaði niður til hennar og hennar áhugamála.
„Honum fannst samfélagsmiðlar hræðilegir og gagnrýndi mig alltaf ef ég vildi taka myndir af mér. Ég mátti ekki tala við vini mína, það sem ég borðaði var ekki alvöru matur og þættir sem ég horfði á voru að gera mig heimska,“ segir hún.
Hún segir að hann hefði oft talað um hversu óhamingjusamur hann væri og að sökin væri hennar eða kattanna hennar. „[Hann] kom stundum heim úr vinnu, sagði ekki orð og fór upp í rúm og svaf til næsta dags. Svo talaði hann mögulega ekki við mig svo dögum skipti út af einhverju sem ég hafði að hans mati gert rangt.“
Katrín Edda segir að hann hefði verið byrjaður að skrifa niður hjá sér allt sem hann taldi hana hafa gera rangt. Hún var farin að fá kvíðaköst vegna sambandsins. „Þetta fór þó aldrei út í líkamlegt ofbeldi. Þetta var bara dæmi um virkilega sjúka ást og allt sem ég er að þylja upp núna sá ég ekki fyrr en seinna þegar ég fór að líta til baka yfir samband okkar,“ segir hún.
View this post on Instagram
Katrín Edda var á þessum tíma orðin mjög vinsæl á samfélagsmiðlum en fylgjendur hennar sáu ekki það sem gerðist á bak við skjáinn. „Eftir að ég opnaði mig um þetta var ég oft spurð að því hvers vegna ég hagaði mér eins og allt væri í lagi á samfélagsmiðlum en málið er að ég var blind á þetta þegar á sambandinu stóð. Ég einblíndi bara alltaf á það jákvæða, fann til með honum og var svo viss um að ég gæti gert hann hamingjusaman.“
Þegar fyrrverandi kærasti hennar fór til Frakklands í þrjár vikur fann Katrín Edda fyrir miklum létti og áttaði sig á að hún þyrfti að hætta með honum. „Ég var mjög lengi brotin eftir hann og átti erfitt með að treysta aftur,“ segir hún.
View this post on Instagram
Í dag er Katrín Edda í heilbrigðu og hamingjusömu sambandi með Markúsi. „Ég fæ að vera eins og ég er og blómstra aftur,“ segir hún.
Katrín Edda er að gefa út sína fyrstu bók, dagbók, sem hún byggir á eigin reynslu. Hún segir nánar frá sambandinu, baráttu sinni við lystarstol og lágt sjálfsmat og mörgu öðru í forsíðuviðtali Vikunnar.