fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Pressan

Loksins komst upp um raðmorðingjann – Sagðist hafa haft „hvatir“

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 4. október 2021 05:54

Le Grélé. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo virðist sem frönsku lögreglunni hafi loksins tekist að leysa fjögur morðmál og sex nauðganir eftir að hafa reynt að hafa uppi á gerandanum í 35 ár. 

Franska lögreglan tilkynnti fyrir helgi að hún væri nú hætt leit að raðmorðingja, sem gekk undir heitinu „Le Grêle“ (Maðurinn með örin) eftir að DNA-rannsókn leiddi í ljós hver hann var.

Hann hét François Vérove og var 59 ára fyrrum lögreglumaður. Hann er talinn bera ábyrgð á fjórum morðum og sex nauðgunum hið minnsta á árunum 1986 til 1994. Meðal fórnarlamba hans var 11 ára stúlka sem var myrt í París 1986.

Lítið hefur gerst í rannsókn málsins árum saman en nýlega ákváðu rannsóknarlögreglumenn í París að setja sig í samband við 750 stöðvar herlögreglunnar í Frakklandi. Ýmsar vísbendingar í málinu bentu til að ofbeldismaðurinn gæti verið liðsmaður herlögreglunnar. BBC segir að í þremur nauðgunum hafi hann kynnt sig sem lögreglumann eða herlögreglumann og í einu framvísaði hann skilríkjum með franska fánanum.

Le Grêle. Mynd:Lögreglan

Vérove, sem var einmitt fyrrum liðsmaður herlögreglunnar og lögreglumaður, fékk boð þann 24. september um að mæta og láta DNA-sýni í té 5 dögum síðar. Þremur dögum síðar hvarf hann og lét eiginkona hans lögregluna vita. Í kjölfarið fannst lík hans í AirBnb íbúð í bænum GrauduRoi og hjá því sjálfsvígsbréf. Ekki hefur verið skýrt opinberlega frá innihaldi bréfsins en franskir fjölmiðlar segja að í því gefi Vérove í skyn að hann hafi framið morð og segist hafa haft „hvatir“. Libération segir að hann hafi skrifað að hann hafi „ekki gert neitt“ síðan 1997. Miðillinn segir einnig að samkvæmt upplýsingum frá saksóknurum þá passi erfðaefni úr manninum við erfðaefni sem fundust á fórnarlömbum.

Lögmaður aðstandenda fórnarlambanna segist telja að fórnarlömbin geti verið mun fleiri en rætt er um. „Við munum aldrei fá að vita um umfang „afbrota“ „La Grêles“,“ sagði lögmaðurinn, Didier Sabier, í samtali við BBC.

Cecile Bloch. Mynd:Lögreglan

Viðurnefni Vérove á rætur að rekja til fyrsta morðsins en það var á hinni 11 ára gömlu Cecile Block í París 1986. Bróðir hennar sagðist hafa verið samferða manni í lyftunni í húsinu, sem fjölskyldan bjó í, daginn sem Cecile var myrt  og hafi hann verið með áberandi ör í andliti, eins og eftir bólur eða hlaupabólu. Henni var nauðgað, kyrkt og stungin og lík hennar síðan skilið eftir undir teppi í kjallaranum. Málið vakti mikinn óhug í Frakklandi. Bróðir Cecile aðstoðaði lögregluna við að gera teikningu af morðingjanum og hefur teikningin hangið uppi á vegg hjá morðdeild Parísarlögreglunnar allar götur síðan 1986.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“