fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Pressan

Melania heldur sig til hlés – „Hún vill þetta ekki“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 7. september 2021 05:53

Melania er mjög ósátt. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur lítið farið fyrir Melania Trump, eiginkonu Donald Trump, síðan hjónin fluttu úr Hvíta húsinu í janúar. Donald Trump íhugar nú pólitíska framtíð sína og næstu leiki á því sviði en Melania lætur ekkert frá sér heyra.

Samkvæmt frétt CNN, sem vísar í nokkra heimildarmenn, þá hefur hún engan áhuga á að verða forsetafrú aftur.

Ekki liggur fyrir hvort eiginmaður hennar muni reyna að komast aftur í Hvíta húsið þegar næst verður kosið um forsetaembættið en Melania vill helst ekki flytja aftur þangað að sögn heimildarmanns CNN. „Hún vill ekki verða forsetafrú aftur,“ sagði heimildarmaðurinn. „Þessum kafla er lokið og þannig er það,“ sagði hann einnig.

Melania hefur verið þekkt fyrir að vera sú forsetafrú sem lét einna minnst fyrir sér fara á meðan hún bjó í Hvíta húsinu og eftir að hún flutti þaðan í janúar hefur hún látið enn minna fyrir sér fara. Hún sást aðeins einu sinni opinberlega í sumar en það var í New York þegar hún kom út úr Trump Tower með syni sínum Barron.

CNN segir að hún ætli að búa á Mar-a-Lago í Flórída, sem er sumarleyfisstaður í eigu Trump, á meðan Barron sonur þeirra stundar nám í einkaskóla.

Heimildarmenn CNN segja að Melania hafi ekki neinar fyrirætlanir uppi um að taka þátt í kosningafundum eða öðrum pólitískum viðburðum með eiginmanni sínum því hún telji pólitískar áætlanir hans vera hans vinnu, ekki hennar. „Þú munt ekki sjá hana á kosningafundum eða öðrum pólitískum viðburðum, jafnvel þótt Donald Trump segi opinberlega að hann bjóði sig fram aftur,“ hefur CNN eftir heimildarmanni. Sá sagði að líklega muni Lara Trump, sem er gift Eric Trump syni Donald Trump, eða Kimberly Guilfoyle, unnasta Don Trump sem er elsti sonur Trump, taka stöðu Melania á pólitíska sviðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Suðurkóreski herinn stendur frammi fyrir nýjum vanda vegna lágrar fæðingartíðni

Suðurkóreski herinn stendur frammi fyrir nýjum vanda vegna lágrar fæðingartíðni
Pressan
Í gær

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lést eftir að hafa borðað brokkolísamloku – Fjöldi fólks á sjúkrahúsi

Lést eftir að hafa borðað brokkolísamloku – Fjöldi fólks á sjúkrahúsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Herða reglur um skotvopnaeign í kjölfar skelfilegra mála

Herða reglur um skotvopnaeign í kjölfar skelfilegra mála
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sextán ára stúlka og tveir yngri piltar handtekin vegna morðs

Sextán ára stúlka og tveir yngri piltar handtekin vegna morðs
Pressan
Fyrir 3 dögum

Byrjaði á OnlyFans á 18 ára afmælisdaginn – Þénaði 140 milljónir á fyrstu þremur klukkustundunum

Byrjaði á OnlyFans á 18 ára afmælisdaginn – Þénaði 140 milljónir á fyrstu þremur klukkustundunum