fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
433Sport

Útilokar ekki að samningi Kolbeins í Svíþjóð verði rift

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. ágúst 2021 13:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Håkan Mild, framkvæmdastjóri IFK Gautaborgar í Svíþjóð vill ekki tjá sig efnislega um málefni Kolbeins Sigþórssonar framherja félagsins. Þeir Kolbeinn Sigþórsson og Rúnar Már Sigurjónsson verða ekki með A-landsliði karla í komandi landsleikjum gegn Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi.

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands ákvað að banna Kolbeini að mæta í verkefnið. Guðni Bergsson sagði af sér sem formaður KSÍ um helgina og stjórnin fylgdi í kjölfarið. að Þórhildur Gyða Arnardóttir steig fram í fréttum RÚV á föstudag og greindi frá því að árið 2017 hafi þekktur landsliðsmaður áreitt hana kynferðislega og ráðist svo á hana, og sagði að Guðna og KSÍ hafi verið vel kunnugt um málið. Vísir.is heldur því fram að gerandi Þórhildar sé Kolbeinn.

Framherjinn hefur játað brot sitt fyrir Þórhildi, hann hitti Þórhildi og baðst afsökunar. Að auki greiddi hann Þórhildi miskabætur.

„Samtalið er hafið innanhús, síðan verðum við að halda áfram út frá. Ég vil bara komast að því sem hefur gerst og hver bakgrunnur málsins er, þegar þú heyrir af svona máli þá er þetta mál sem þú skoðar,“ sagði Mild við sænska fjölmiðla um stöðu mála.

„Ég hef rætt við Kolbein, þetta gerðist fyrir fjórum árum og það er sátt á milli aðila. Núna ræðum við málið hér hjá Gautaborg. Þannig er staðan.“

Þegar Mild var spurður að því hvort Gautaborg íhugaði að rifta samningi Kolbeins. „Slík umræða er innan okkar raða.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Má ekki byrja að hugsa um stórlið eins og Real Madrid – ,,Ferillinn hefur staðið yfir í tvö ár“

Má ekki byrja að hugsa um stórlið eins og Real Madrid – ,,Ferillinn hefur staðið yfir í tvö ár“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skammaðist sín eftir að hafa tekið sína bestu ákvörðun – ,,Ég var algjör aumingi“

Skammaðist sín eftir að hafa tekið sína bestu ákvörðun – ,,Ég var algjör aumingi“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum
433Sport
Í gær

Tvíburar á bekknum í úrvalsdeildinni

Tvíburar á bekknum í úrvalsdeildinni
433Sport
Í gær

Kristján varpar fram kenningu um aðstoðarmanninn á Hlíðarenda – „Það er byrjað að brýna hnífana og það á bara eftir að dúndra þeim í bakið á Hermanni“

Kristján varpar fram kenningu um aðstoðarmanninn á Hlíðarenda – „Það er byrjað að brýna hnífana og það á bara eftir að dúndra þeim í bakið á Hermanni“
433Sport
Í gær

England: United vann sterkan sigur á Newcastle

England: United vann sterkan sigur á Newcastle