fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fókus

10 rauð flögg sem sálfræðingur segir að bendi til þess að makinn þinn sé siðblindur

Fókus
Miðvikudaginn 11. ágúst 2021 20:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veistu hver makinn þinn er í raun og veru? Sálfræðingurinn deilir með The Sun 10 rauðum flöggum sem benda til þess að makinn þinn sé siðblindur. En ef makinn þinn er siðblindur er sennilega réttast að hlaupa eins og fæturnir bera þig í burtu.

Eftirafarandi er lausleg þýðing Fókus á rauðu flöggunum sem Emma nefnir til sögunnar.

1 Sníkjudýr

Þeir panta dýrustu máltíðina á matseðlinum en hafa svo fyrir hentugleika gleymt greiðslukortum sínum heima svo þú þarft að borga bitann.

Þeir eru þó svo góðir í að koma með afsakanir að þú átt erfitt með að sjá hvort um raunverulega yfirsjón var að ræða eða ekki.

Þeir virðast vinsælir meðal fólks en fá þó fljótt leið á langtíma vinskap og eru því sífellt að skipta um vinahópa.

Ef þeir geta grætt á öðrum, fjárhagslega, faglega eða félagslega – þá gera þeir það. Og ef þeir tapa vinum í kjölfarið þá eru þeir fljótir að spila út „fórnarlambs-spilinu“

2 Hafa aldrei rangt fyrir sér

Þeir eru stöðugt að breyta máli sínu og tryggja þannig að þú getur aldrei verið viss hvar þú hefur þá. Jafnvel þegar þú stendur þá að lygi þá ná þeir að snúa öllu á hvolf þannig að þú ferð að efast um sjálfa þig.

Þetta þýðir að þú átt það til að gefast bara upp og samþykkja allt sem þeir segja, bara til að forðast átök. Jafnvel ef þú stendur þá að framhjáhaldi þá er það einhvern veginn þér að kenna. Þér var ekki nægilega annt um þá, studdir þá ekki nægilega eða sýndir þeim að öðru leyti ekki nægt tillit til gerði þá nauðbeygða til að leita annað.

3 Frábærir elskhugar

Þó að siðblindingjar séu hryllilegir makar þá geta þeir algjörlega gert þig orðlausa með frammistöðu sinni í rúminu.

Það er auðvelt að rugla hroka saman við sjálfstraust og skortur þeirra á hömlum geta látið þig finna fyrir kynferðislegi frelsum og hvatt þig til að prófa nýja hlut.

Því miður gæti það farið svo að á meðan hjónabandið ykkar siglir í stand og þeim finnst þú ekki næg áskorun lengur þá fá þeir leið á þér og saka þig um að vera orðin leiðinleg í rúminu.

4 Þeir vilja trekant

Siðblindingjar skilja ekki ást, bara eignarhald.

Það sem þeir eiga vilja þeir nota sér til hagsmuna. Kynferðislega ertu meira hlutur eða leikfang frekar en manneskja.

Þeir koma með hugmyndina um að fara í trekant og nota annað hvort tælingu eða þvingun til að ná vilja sínum fram. Þegar þeir nota þvingun reyna þeir oft að fá þig til að huga að þú ein getir ekki lengur fullnægt þörfum þeirra.

Með tælingu reyna þeir að sannfæra þig um að trekantur sé fórn sem þeir séu tilbúnir að færa til að þú fáir tækifæri til að upplifa eitthvað nýtt kynferðislega.

5 Krókódílatár

Á meðan siðblindingjarnir geta sýnt tilfinningar á borð við gleði, hamingju eða undrun þá vantar eitthvað hvað ótt og depurð við kemur. Þeir gera sér upp þessar tilfinningar og birta þeir með þeim hætti sem þeir telja að eigi við.

Það eru engin alvöru tár í útför aðstandenda, og þeir gætu virst gífurlega stressaðir eina mínútuna en svo í fullkomnu jafnvægi þá næstu. Tilfinningarnar birtast ýktar hjá þeim því þeir eru að reyna að gera sér þær upp.

6 Ástarsprengjur

Siðblindingjar í samböndum reyna að kæfa þig úr ást til að fá allt úr sambandinu sem þeir telja sig eiga rétt á.

Jafnvel í langtímasamböndum þá eru þeir aðeins of ástúðlegir og þú upplifir þig sem nafla alheims þeirra, allt svo þeir fái allt frá þér sem þú getur gefið.

Þeir ítrekað lýsa því yfir að þeir muni elska þig að eilífu.

Þeir taka yfir sameiginlega bankareikninga og neyða þig til að verða undirgefin svo þú endar með að þjóna öllum þeirra duttlungum.

7 Allir kunna vel við þá

Þeir eru heillandi en skortir alla dýpt. Í upphafi fara þeir með þig á dásamleg stefnumót. Þeir lofa þér framandi ferðalögum og íburðarmiklum gjöfum. En þessi loforð verða aldrei að veruleika.

Persónutöfrar eru lykilverkfæri í verkfærakistu siðblindingja. Þeir leita uppi fólk sem er í leit að hinum eina rétta og ríða inn í líf þitt á hvítum hesti og lofa þér eldheitri ástarsögu.

Í fyrstu virðist sem öllum líki vel við þá en allir sem ná raunverulega að kynnast þeim sjá í gegnum þá. Því miður munu töfrarnir sem einkenndu upphafið deyja og þú situr eftir að leita af einhverjum vísbendingum um að riddarinn á hvíta hestinum sé enn þarna einhvers staðar.

8 Biðjast aldrei afsökunar

Engin lygi er of stór eða of lítil og jafnvel þó þú getir sýnt þeim svart á hvítu að þeir hafi logið, haldið framhjá eða stolið þá kippa þeir sér ekkert upp við það.

Þetta er eitt stærsta rauða flaggið sem þú getur séð og þú ættir að taka því alvarlega.

Þeir eru alltaf tilbúnir með afsakanir og taka aldrei neina ábyrgð á eigin hegðun.

Þeir láta þig halda að það sé þú sem sért geðveik og þú veltir því stöðugt fyrir þér hvort það sé rétt.

9 Með ræktina á heilanum

Þeir eyða tímunum saman í ræktinni og þó að þú kunnir vel að meta í hversu góðu formi þeir eru þá er það ekkert á við hvað þeir kunna vel að meta eigin spegilmynd.

Þeir geta komist í gegnum harðari æfingar en aðrir og hafa háan sársaukaþröskuld og elska að slá öðrum út.

Þeir gera þá kröfu að þú lofir þá fyrir árangurinn, hrósir þeim fyrir hvern millimetra sem þeir ná að bæta við vöðvamassann og útvegir þeim alla þá próteinsjeika sem þeim langar í.

Þeir elska að líta vel út því þeir eru alltaf í leit að næsta skotmarki.

10 Þeir tala um fyrrverandi

Það er hluti af áætlun þeirra að minnka sjálfstraustið þitt. Óöryggi þitt valdeflir þá. Þeir njóta þess að bera þig saman við fyrrverandi maka þeirra og minna þig á hvað hún var tilbúin að gera til að halda þeim hamingjusömum.

Hann nefnir konur sem hann vinnur með á nafn og rifjar upp samtöl sem hann átti við stelpurnar í ræktinni. Fyrir þig getur þetta litið ut eins og það sé ósýnileg þriðja manneskja í sambandinu.

Hversu illa sem hann kemur fram við þig þá trúir hann því í raun og veru að þú sért heppin að eiga hann að og hann er stöðugt að finna nýjar leiðir til að minna þig á það.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Karl konungur minnist móður sinnar á afmælisdegi hennar

Karl konungur minnist móður sinnar á afmælisdegi hennar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?
Fókus
Fyrir 1 viku

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík
Fókus
Fyrir 1 viku

Anne Hathaway er fallegasta forsíðustúlkan

Anne Hathaway er fallegasta forsíðustúlkan
Fókus
Fyrir 1 viku

Hreimi Erni gafst tækifæri til að svíkja félaga sína – „Ég veit ekki hvort þeir viti þetta”

Hreimi Erni gafst tækifæri til að svíkja félaga sína – „Ég veit ekki hvort þeir viti þetta”
Fókus
Fyrir 1 viku

Hasarmyndastjarna stígur óvænt skref

Hasarmyndastjarna stígur óvænt skref