fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Messi grét á blaðamannafundi er hann kvaddi Barcelona

Ísak Gabríel Regal
Sunnudaginn 8. ágúst 2021 12:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lionel Messi grét á blaðamannafundi í dag er hann kvaddi uppeldisfélag sitt, Barcelona.

Argentínumaðurinn er líklegur til að fara til PSG á frjálsri sölu en kappinn sagði að ekki væri búið að ákveða neitt. Búist var við að hann myndi endurnýja samning sinn við Barcelona í sumar en félagið er í fjárhagskröggum og gat ekki samið við Messi.

Ég og fjöldskyldan mín vorum sannfærð um að við myndum vera hérna áfram, heima,“ sagði hann á blaðamannafundi á sunnudaginn.

Þetta eru endalokin hjá klúbbnum og nýr kafli tekur við. Já, þetta er ein erfiðasta stund sem ég hef upplifað. Mig langar ekki að yfirgefa félagið – ég elska þennan klúbb og bjóst ekki við þessu. Mig langaði að fara í fyrra, mig langar að vera áfram í ár. Þess vegna er ég dapur. Blóðið fraus í æðum mér. Ég var virkilega dapur. Þetta var mjög erfitt fram að þessu. Ég er enn að reyna að melta þetta.“

Mér mun enn líða illa þegar ég kem heim, þetta verður enn verra. Ég er ekki tilbúinn fyrir þetta

Messi er í guðatölu í Barcelona og hefur verið hjá félaginu síðan hann var 13 ára gamall. Hann hefur leikið 520 deildarleiki fyrir félagið og skorað 474 mörk sem er met.

Myndbandið af Messi á blaðamannfundinum má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Steig af stærsta sviðinu og tók U-beygju í lífinu – „Það átti ekki endilega neinn að sjá þessar myndir“

Steig af stærsta sviðinu og tók U-beygju í lífinu – „Það átti ekki endilega neinn að sjá þessar myndir“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Teikna upp dökka mynd af fjárhagsstöðu Chelsea eftir hörmulegt gengi

Teikna upp dökka mynd af fjárhagsstöðu Chelsea eftir hörmulegt gengi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Real Madrid ekki bara að skoða Mourinho

Real Madrid ekki bara að skoða Mourinho
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Áhugi United á Fernandes til staðar – Fer ef þeir falla

Áhugi United á Fernandes til staðar – Fer ef þeir falla