fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Sænskur barnaníðingur með mikið magn barnakláms í fórum sínum – Lögreglan fann einnig önnur hrollvekjandi gögn

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 22. júlí 2021 06:59

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

29 ára sænskur karlmaður var nýlega dæmdur í átta ára fangelsi af dómstól í Värmland. Hann var fundinn sekur um að hafa verið með 600.000 barnaklámsmyndir í fórum sínum. Við leit hjá honum fann lögreglan síðan frekari gögn sem vörpuðu ljósi á önnur afbrot hans.

Expressen skýrir frá þessu. Fram kemur að málið hafi farið af stað í október 2019 þegar maðurinn setti sig í samband við stúlku í gegnum Snapchat. Hann ætlaði að fá stúlkuna til að senda sér nektarmyndir. En þetta fór algjörlega út um þúfur og maðurinn var handtekinn og þá fór málið heldur betur að vinda upp á sig.

Hjá manninum fann lögreglan þrjá farsíma og tölvu. Í þessum tækjum hafði maðurinn vistað 600.000 myndir og myndbönd með barnaklámi. Fórnarlömbin voru 11 til 15 ára stúlkur sem voru oft naktar eða sýndar í kynferðislegu samhengi á þessum myndum.

Þess utan fann lögreglan 13.000 skilaboð og út frá þeim komst lögreglan að því að maðurinn hafði brotið gegn 37 stúlkum í gegnum Snapchat. Hann hafði fengið margar þeirra til að senda sé nektarmyndir.

Expressen segir að lögreglan hafi einnig fundið ýmsa hrollvekjandi texta sem maðurinn hafði skrifað. „Ég tel ekki að nauðganir, barnaníð eða barnaklám sé eitthvað sem er rangt eða ólöglegt. Ég tel þetta vera eðlilegt og löglegt út frá því hvernig allar stúlkur hegða sér í nútímasamfélagi,“ hafði hann meðal annars skrifað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman