fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Lengjudeild karla: Jafnt í uppgjöri efstu liðanna

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. júlí 2021 19:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fram tók á móti ÍBV í uppgjöri tveggja efstu liða Lengjudeildarinnar í dag. Leikurinn var liður í 12. umferð. Jafntefli varð niðurstaðan.

Markalaust var í leikhléi eftir fremur bragðdaufan fyrri hálfleik.

Indriði Áki Þorláksson kom Fram yfir á 71. mínútu. Hann skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu.

Sito svaraði um hæl fyrir ÍBV hinum megin á vellinum og jafnaði með flottu marki.

Albert Hafsteinsson fékk gullið tækifæri til að koma heimamönnum aftur yfir þegar fimm mínútur lifðu leiks. Þá fékk Fram víti. Spyrna hans var hins vegar slöpp og greip Halldór Páll Geirsson í marki ÍBV boltann.

Lokatölur á Framvellinum urðu 1-1.

Fram er sem fyrr á toppi deildarinnar. Liðið er með 32 stig, 9 stigum meira en ÍBV sem er í öðru sæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Eru að kaupa framherjann sem þeir náðu ekki að fá í janúar

Eru að kaupa framherjann sem þeir náðu ekki að fá í janúar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Handtekinn á Costa del Sol með fíkniefni á sér

Handtekinn á Costa del Sol með fíkniefni á sér
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segir Breiðablik leita til fjársterka aðila til að fjármagna launapakka Jóhanns Berg

Segir Breiðablik leita til fjársterka aðila til að fjármagna launapakka Jóhanns Berg
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ólöglegar greiðslur Chelsea skiluðu miklum árangri – Mörgum finnst refsingin væg

Ólöglegar greiðslur Chelsea skiluðu miklum árangri – Mörgum finnst refsingin væg
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Davíð Þór fer inn í stjórn ÍTF – Stefnir í arðgreiðslur í lok árs

Davíð Þór fer inn í stjórn ÍTF – Stefnir í arðgreiðslur í lok árs