fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Norðmenn gætu stolið vonarstjörnu Íslands – Bjarni segir aldur kvenna og karla ekki sambærilegan

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 1. júlí 2021 09:01

Amanda er afar efnileg knattspyrnukona.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Helgason blaðamaður á Morgunblaðinu stingur niður penna í blað dagsins og ritar þar og ræðir um efnilegustu knattspyrnukonu Íslands. Amanda Andradóttir 17 ára íslensk og norsk knattspyrnukona hefur slegið í gegn með liðinu sínu Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni.

Vålerenga er besta lið Noregs ef miðað er við síðasta tímabil þar sem liðið vann deildina, Amanda gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið og hefur slegið í gegn.

Amanda hefur mikið verið til umræðu síðustu vikur eftir að hafa verið valin í norska U19 ára landsliðið á dögunum. Faðir hennar er íslenskur en móðir hennar er norsk, Amanda getur því valið fyrir hvort landsliðið hún spilar.

„Það hefur verið afar áhugavert að fylgjast með uppgangi Amöndu Andradóttur undanfarna mánuði, en hún hefur svo sannarlega slegið í gegn með meistaraliði Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu síðustu vikur. Þrátt fyrir að vera einungis 17 ára gömul er hún strax farin að láta til sín taka í Noregi eftir komuna frá danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland í desember á síðasta ári,“ skrifar Bjarni í Morgunblaðið í dag.

„Amanda var ekki valin í íslenska kvennalandsliðið sem mætti Írlandi í vináttulandsleikjum á Laugardalsvelli, dagana 11. og 15. júní, og var þess í stað valin í norska U19-ára landsliðið þar sem hún stóð sig vel.“

Bjarni segir að þrátt fyrir ungan aldur eigi Amanda heima í A-landsliðinu, ekki sé hægt að bera saman aldur kvenna og karla í fótbolta.

„Mikið hefur verið rætt og ritað um aldur leikmannsins að undanförnu, en hafa ber í huga að aldur í kvennafótbolta er ekki alveg sambærilegur við aldur í karlaboltanum. Leikmenn eins og Agla María Albertsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir voru báðar búnar að spila sinn fyrsta A-landsleik þegar að þær voru 17 ára gamlar.“

Bjarni segir að það væri synd að horfa á eftir Amöndu í norska landsliðið. „Það er ekki mitt hlutverk að velja leikmenn í íslenska kvennalandsliðið en ef horft er til gæða leikmannsins þá hlýtur maður að spyrja sig hvort hún eigi ekki heima í íslenska landsliðinu og því fyrr því betra, því það yrði mikil synd að sjá hana klæðast norsku treyjunni einn daginn,“ skrifar Bjarni í Moggann í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arne Slot mjög ósammála fullyrðingum Carragher

Arne Slot mjög ósammála fullyrðingum Carragher
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Svona er hópur U-19 ára landsliðsins – Sex spila erlendis

Svona er hópur U-19 ára landsliðsins – Sex spila erlendis
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Slot finnur fyrir pressu en tekur henni fagnandi

Slot finnur fyrir pressu en tekur henni fagnandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á