

Það vakti verulega athygli fyrr í vikunni þegar það kom í ljós að Daði og Gagnamagnið sem keppir fyrir hönd Íslands í Eurovison fékk forgang í bólusetningu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og hans fólk ákvað að bólusetja hópinn þrátt fyrir að viðmiðin séu önnur.
Hefur þetta reitt margan manninn til reiði og sérstaklega fólk í afreksíþróttum, þeir einstaklingar þurfa nú að ferðast um Evrópu í þeirri von um að eiga möguleika á miða á Ólympíuleikana í sumar en Þórólfur hefur látið hafa eftir sér að sá hópur fá ekki forgang.
„Afreksíþróttafólkið okkar er besta landkynning sem við eigum. Svo ég tali nú ekki um forvarnar- og lýðheilsustarfið sem þetta fólk vinnur, bæði meðvitað og ómeðvitað,“ skrifar Bjarni Helgason blaðamaður á Morgunblaðinu reiður í blaði dagsins.
Hann varð verulega reiður þegar fréttirnar um Gagnamagnið fóru í loftið, þrátt fyrir bólusetningu kom upp smit í hópnum og getur hljómsveitin ekki sungið og trallað á Eurovison. „Djöfull fór það í taugarnar á mér þegar ég sá að Eurovisionfararnir hefðu fengið forgang í bólusetningu fyrir ferðalag sitt til Rotterdam, rúmlega tveimur og hálfum mánuði eftir að sóttvarnalæknir hafði gefið það út að ekki væri hægt að velja fólk eftir mikilvægi í bólusetningar.“
Bjarni segir að stjórnvöld hugsi ömurlega um okkar helsta afreksfólk í íþróttum. „Af hverju hugsum við svona illa um íþróttafólkið okkar? Á Íslandi eru atvinnuleysisbætur fyrir marga sem hafa engan áhuga á því að vinna, bæði erlenda og íslenska ríkisborgara. Þá hefur listafólk hér á landi verið í áskrift að listamannalaunum ár eftir ár. Hvort þetta fólk hefur skilað af sér einhverri áþreifanlegri vinnu hef ég ekki hugmynd um, ég hef allavega ekki orðið neitt sérstaklega var við það í sumum tilfellum.“
Bjarni heldur svo áfram. „Það er allri þjóðinni til heilla ef íþróttafólkið okkar nær góðum árangri úti í hinum stóra heimi og það sýndi sig kannski best á EM 2016 í knattspyrnu. Nú er mál að stjórnmálamenn hér á landi beiti sér af alvöru fyrir því að styrkja íþróttafólkið og íþróttahreyfinguna okkar. Fólk á að geta stundað sína íþrótt af kappi, líkt og í löndunum í kringum okkur, án þess að þurfa að lifa á morgunkorni heilu og hálfu vikurnar,“ skrifar Bjarni í Morgunblaðið.