fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
433Sport

Segir Roy Keane „búinn að vera“ sem knattspyrnustjóri og segir Celtic að halda sig fjarri

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 15. mars 2021 18:59

Roy Keane /GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Simon Jordan, einn af umsjónarmönnum TalkSport, segir að Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United sé búinn að vera sem knattspyrnustjóri.

Keane hefur á sínum knattspyrnustjóraferli ekki notið jafn mikillar velgengni og sem leikmaður Manchester United. Hann hefur stýrt liðum á borð við Sunderland og Ipswich en hefur ekki verið í knattspyrnustjórastöðu síðan árið 2011.

Keane hefur verið orðaður við knattspyrnustjórastöðuna hjá Celtic en Simon Jordan vill að skoska félagið haldi sig fjarri honum.

„Ég tel að þetta yrði risastór áhætta, að ráða þann Roy Keane sem við þekkjum núna. Maður gæti hugsað sér það þegar hann var að fara inn í þjálfun fyrst en ég tel að sem knattspyrnustjóri núna sé hann búinn að vera,“ sagði Simon Jordan í útsendingu TalkSport.

Hann vill að Roy Keane haldi sig við starf sitt sem álitsgjafi hjá SkySports.

„Ég tel að Celtic eigi stórt verkefni fyrir höndum og þeir þurfa einstaklinga sem geta sinnt þessu starfi vel til þess að brúa bilið sem hefur myndað við Rangers,“ sagði Simon Jordan, umsjónarmaður Talksport.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Jóhann Berg snýr aftur í landsliðshópinn

Jóhann Berg snýr aftur í landsliðshópinn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmaður United pirraður við stuðningsmann – „Sýnið einkalífi mínu smá virðingu“

Leikmaður United pirraður við stuðningsmann – „Sýnið einkalífi mínu smá virðingu“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sjáðu harkalegar möttökur sem Trent fékk á Anfield og viðbrögð hans

Sjáðu harkalegar möttökur sem Trent fékk á Anfield og viðbrögð hans
433Sport
Í gær

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins
433Sport
Í gær

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni