fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir leikmenn Liverpool vera eins og uppvakninga – Þarf Klopp að prufa nýja hluti?

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 22. febrúar 2021 12:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nágrannaslagurinn milli Liverpool og Everton fór fram á Anfield um helgina. Um var að ræða fyrstu viðureign liðanna síðan Jordan Pickford, markmaður Everton, tæklaði Virgil van Dijk, lykilmann Liverpool, með þeim afleiðingum að hann meiddist en hann er ennþá meiddur. Sá leikur endaði með jafntefli sem var ansi svekkjandi fyrir Liverpool-menn.

Liverpool var hins vegar í vandræðum um helgina og vann Everton að lokum 0-2 sigur þar sem Gylfi Sigurðsson skoraði seinna markið.

Gengi Liverpool hefur verið slakt síðustu vikur og liðið þarf nú að berjast fyrir því að ná Meistaradeildarsæti.

„Þetta er farið að líta illa út, við vitum af meiðslunum, við vitum að þeir hafa enga stuðningsmenn á vellinum við vitum af COVID og að það er þétt spilað. En þetta er eins fyrir alla,“ sagði Neville.

„Það eru engar breytingar hjá þeim eða aðrar hugmyndir. Þeir virðast niðurbrotnir, eins og uppvakningar á vellinum. Labba um og hugsa það sama. Kannski þarf Klopp að breyta til. Hann hefur verið ósnertanlegur hjá Liverpool og er það enn, en hann sjálfur hlýtur að íhuga aðrar aðferðir.“

„Það er ekki mitt að ráðleggja Liverpool eða Klopp hvað skal gera, kannski þarf hann að verja vörnina sína og fara í þriggja manna vörn. Við höfum séð önnur lið gera það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug