fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Ef þú vilt gera vel við þig á HM í Katar þá er þetta kostnaðurinn – Uppselt í bestu sætin

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fer fram sögulegt Heimsmeistaramót í knattspyrnu á næsta ári þegar mótið verður haldið í Katar. Heimamenn hafa lagt mikið í sölurnar til að gera mótið allt hið glæsilegsata.

Katar er ekki stórt land og því verður tækifæri til að sjá hið minnsta tvo leiki á dag, fyrir þá sem ætla að leggja leið sína til landsins.

Í gær fóru í sölu pakkar í bestu sætin á völlunum og þar á meðal Lusail völlinn þar sem úrslitaleikurinn var. Hægt var að kaupa pakka með miða á tíu leiki, þar á meðal úrslitaleikinn sjálfan.

Kostnaðurinn við slíkt var 72 þúsund dollarar á mann eða 10 milljónir. Um er að ræða miða í Pearl lounga, með mat og drykk. Auk þess færðu bílastæði á bestað stað fyrir utan völlinn.

Fleiri pakkar fóru í sölu á aðra velli og er allt þetta uppselt nú tæpum tveimur árum fyrir mótið. Mótið hefst í lok nóvember árið 2022.

Mótið er það fyrsta sem fer ekki fram að sumri til en hitinn í Katar er slíkur að ekki var hægt að halda mótið þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tómas Þór segir engan öruggan í starfi á meðan þessi maður gengur um göturnar

Tómas Þór segir engan öruggan í starfi á meðan þessi maður gengur um göturnar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“