fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Brjálaður og vill segja upp störfum – Hefur ekki áhuga á peningum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andre Villas-Boas hefur ósakað eftir að láta af störfum sem þjálfari Marseille í Frakklandi, ástæðan eru kaup félagsins á Oliver Ntcham frá Celtic í gær.

Ntcham kom á láni til Marseille í gær til að fylla skarð Morgan Sanson sem var seldur til Aston Villa í síðustu viku.

Villas-Boas hafði sagt forráðamönnum Marseille það að hann vildi ekki fá Ntcham til félagsins. Hann frétti af komu hans í gegnum fjölmiðla og er brjálaður.

„Þetta var ekki mín ákvörðun, ég hafði hafnað því að fá þennan leikmenn. Ég vissi ekki af þessu, ég las um þetta í fjölmiðlum,“ sagði Villas-Boas en læti hafa verið í kringum Marseille vegna slæmra úrslita.

Stuðningsmenn félagisns hafa verið með óeirðir á æfingasvæðinu og meira til. „Ég kann vel við Marseille en ég er fagmaður, þegar þú færð til mín leikmann sem ég vil ekki. Samkomulag um annað var gert en var ekki virt.“

„Ég hef boðist til þess að segja af mér, ég hef ekki fengið svart frá stjórninni. Ég vil ekki peninga, ég vil bara fara.“

Myndband af þessu á frönsku má segja hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tómas Þór segir engan öruggan í starfi á meðan þessi maður gengur um göturnar

Tómas Þór segir engan öruggan í starfi á meðan þessi maður gengur um göturnar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“