

Manchester United hefur staðfest sölu á Marcos Rojo til Boca Juniors í Argentínu. Kaupverðið er ekki gefið upp en það er þó ekki hátt.
Rojo var að verða samningslaus í sumar en hann hefur ekkert komið við sögu hjá Manchester United á þessu tímabili.
Rojo var á láni hjá Estudiantes í Argentínu á síðustu leiktíð en hann lék síðast með United í nóvember árið 2019.
Rojo gekk í raðir Manchester United árið 2014 en landsliðsmaðurinn frá Argentínu heldur nú heim á leið, þrítugur að aldri.
Manchester United minnkaði hóp sinn talsvert í janúar en Timothy Fosu-Mensah og Rojo voru seldir frá félaginu. Þá fór Odion Ighalo aftur til Kína og Jesse Lingard var lánaður.