

Manchester United fordæmir þá fordóma sem leikmenn félagsins máttu þola á samfélagsmiðlum í fyrradag. Félagið skorar á samfélagsmiðla að herða regluverk sitt til að koma í veg fyrir að nafnlausir einstaklingar geti hagað sér með þesusm hætti.
Anthony Martial og Axel Tuanzebe urðu fyrir kynþáttaníði á samfélagsmiðlum. Manchester United mistókst að endurheimta toppsæti deildarinnar og tapaði óvænt fyrir Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í fyrradag.
Það voru hins vegar ekki bara leikmennirnir tveir sem máttu þola kynþáttaníð og ógeðsleg skilaboð. Melanie Martial eiginkona Anthony Martial fékk mörg ljót skilaboð.
Hún ákvað að birta ljótustu skilaboðin sem hún fékk en þar er því meðal annars hótað að drepa hana, ungan strák þeirra og Martial sjálfan. „Segðu helvítis eiginmanni þínum, kærasta eða bólfélaga, hvað sem hann nú er að drulla sér frá Manchester. Annars drepum við hann,“ skrifar einn aðili í skilaboðum til Melanie.
Hann heldur svo áfram. „Síðasta viðvörun, þið ættuð að fara annars er líf þitt, barnsins og hans í hættu.“
Melanie fær svo ljót skilaboð um hörundslit Martial. „Þú ert hvít en samt með svörtum aumingja, ógeðslegt.“
Skilaboðin sem birt voru eru hér að neðan.


