

Serge Aurier bakvörður Tottenham er í klípu og ólíklegt er að Jose Mourinho, stjóri Tottenham treysti á hann næstu vikurnar.
Aurier var í byrjunarliði liðsins í tapinu gegn Liverpool í gær en hann var tekinn af velli í hálfleik þegar Tottenham var 0-1 undir.
Aurier var afar ósáttur með ákvörðun Mourinho og ákvað að rjúka heim á leið á meðan leikurinn var í gangi, bakvörðurinn var með þessu að mótmæla ákvörðun stjórans.
Ensk blöð fjalla um málið en Mourinho var ekki meðvitaður um ákvörðun Aurier að leik loknum.

Vandamál Tottenham eru nokkur eftir tapið gegn Liverpool í gær en þau stærstu eru meiðsli Harry Kane sem fór meiddur af velli í hálfleik.
„Þetta eru tvö meiðsli, báðir ökklarnir. Fyrra kom eftir ljótt brot frá Thiago. Það er erfitt að fylla hans skarð;“ sagði Mourinho.
„Þetta verða nokkrar vikur, við verðum að berjast í gegnum þetta. Við getum ekkert annað gert.“