fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Brottrekstur Lampard kom Rooney ekki á óvart – „Svona sem málum er háttað hjá Chelsea“

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 28. janúar 2021 21:30

Frank Lampard / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það kom Wayne Rooney, knattspyrnustjóra Derby County, ekki á óvart þegar að hann frétti af brottrekstri Frank Lampard frá Chelsea á dögunum. Rooney og Lampard spiluðu á sínum tíma saman með enska landsliðinu.

„Ég var ekki hissa á að heyra að Lampard hefði verið rekinn ef ég á að vera hreinskilinn. Það er augljóslega svona sem staðið er að málum hjá Chelsea. Ég er viss um að Lampard hafi vitað það þegar hann tók að sér starfið,“ sagði Rooney á blaðamannafundi.

Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er ekki þekktur fyrir að hafa mikla þolinmæði gagnvart þeim knattspyrnustjórum sem hann ræður til félagsins.

„Síðan Roman Abramovich eignaðist félagið er það augljóst að hann gefur knattspyrnustjórum ekki mikinn tíma til að koma sínum hugsjónum að. Hann krefst árangurs strax og ef það næst ekki, ertu látinn fara,“ sagði Rooney.

Lampard tók við Chelsea árið 2019, Rooney telur að hann hefði átt að fá meiri tíma.

„Hann skilaði góðu verki í fyrra, spilaði á ungum leikmönnum og tryggði liðinu sæti í Meistaradeild Evrópu. Á þessu tímabili fékk hann nýja leikmenn til liðs við félagið sem þurftu tíma,“ sagði Wayne Rooney, knattspyrnustjóri Chelsea.

Brottrekstrar knattspyrnustjóra á þeim tíma sem er liðinn síðan Abramovich eignaðist félagið, hafa orðið til þess að félagið hefur þurft að greiða 110,5 milljónir punda til að borga upp samninga knattspyrnustjóranna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Segir Djuric hafa hafnað Blikum og fari í KA – Sagður kosta 18 milljónir og fær betur borgað á Akureyri

Segir Djuric hafa hafnað Blikum og fari í KA – Sagður kosta 18 milljónir og fær betur borgað á Akureyri
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ronaldo fer í sérstaka meðferð á Spáni – Meiðslin alvarlegri en talið var í fyrstu

Ronaldo fer í sérstaka meðferð á Spáni – Meiðslin alvarlegri en talið var í fyrstu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda