fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Fréttir

Lögregla vopnuð skotvopnum handtók menn á Austurvelli – Atvikið vekur gagnrýni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 17. október 2020 17:13

Samsett myndefni frá Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég spyr: Eru þetta aðlilega varúðarráðstafanir lögreglu þegar handsama þarf tvo ógæfumenn af bekk á Austurvelli? Er sérsveitin, stífvopnuð og vissulega mjög ógnandi í sínum aðgerðum, nauðsynleg í svona útköll? Eiga útigangsmenn í Reykjavík á hættu að vera skotnir?“ segir maður á Twitter í dag og birtir myndbönd af handtöku tveggja manna á Austurvelli í dag, að virtist fyrir litlar sakir.

Í myndskeiðunum má sjá glögglega að lögreglumennirnir sem handtóku mennina voru vopnaður byssum.

Lögreglan svarar tístaranum og segist setja spurningamerki við þá fullyrðingu mannsins að um ógæfumenn eða útigangsmenn hafi verið að ræða. „Þannig að ef ég sest þarna einhvern daginn er ég þá fordæmdur útigangsmaður eða ógæfumaður?“ spyr lögreglumaðurinn sem svarar gagnrýninni.

Svari lögreglumannsins er svarað fullum hálsi og spruttu af þessu töluverðar deilur í dag.

 

Lögregla skýrir málið betur

Í nýju svari frá lögreglu segir að myndskeiðið sýni endapunktinn á lengri aðgerð sem ekki sé hægt að fara nánar út í á þessu stigi málsins. Höfðu mál atvikast þannig að sérsveitin var kölluð til aðstoðar. Segir að framkvæmd handtökunnar hafi fyllilega verið í samræmi við eðli málsins.

Uppfært kl. 17:35

Á vef Fréttablaðsins kemur fram að maður sem handtekinn var hafði rænt verslun með hníf í dag. Þar sem  hann var vopnaður taldi lögregla nauðsynlegt að hafa þennan viðbúnað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri
Fréttir
Í gær

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Angjelin er í opnu fangelsi og mun aðeins afplána helming dómsins

Angjelin er í opnu fangelsi og mun aðeins afplána helming dómsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ása er stolt af því að vera þingkona: „Það er þó eitt við þetta starf sem ég er enn að reyna að skilja“

Ása er stolt af því að vera þingkona: „Það er þó eitt við þetta starf sem ég er enn að reyna að skilja“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“