fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Pressan

Lægsta dánartíðnin í sex ár í Danmörku

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 12. október 2020 14:05

Mörg erlend ríki stunda njósnir í Danmörku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að heimsfaraldur kórónuveirunnar, sem veldur COVID-19, herji á Danmörku eins og flest önnur lönd heimsins þá er dánartíðnin sú lægsta síðan 2015. Ástæðan er væntanlega að faraldurinn hefur ekki verið stjórnlaus í Danmörku og að þær ráðstafanir sem gripið hefur verið til vegna hans hafi haft þau hliðaráhrif að færri deyja. Þar er átt við félagsforðun, notkun handspritts og fleira.

Politiken skýrir frá þessu. Fram kemur að danska smitsjúkdómastofnunin taki saman tölur um andlát vikulega og beri saman við tölur síðustu fimm ára. Sú samantekt sýnir að fyrstu 30 vikur ársins 2020 var dánartíðnin sú lægsta síðan 2015. Hún var raunar lægri en vænta má miðað við íbúafjölda og samsetningu íbúanna. Stofnunin segir að þær ráðstafanir, sem gripið hefur verið til vegna heimsfaraldursins, vinni einnig gegn inflúensu og fleiri sjúkdómum og því hafi færri látist.

Joachim Hoffmann-Petersen, yfirlæknir, sagðist setja spurningarmerki við aðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldursins.

„Núna er erfitt að sjá hvert langtímamarkið ríkisstjórnarinnar er. Vilja menn hafa eins lága dánartíðni og hægt er og eins fáar innlagnir á sjúkrahús og hægt er óháð hvað það kostar? Það er kjánalegt og dýrt. Vilja menn gera út af við kórónuveiruna? Það er ómögulegt. Vilja menn tefja tímann þar til við fáum bóluefni? Það passar vel við að við sættum okkur við aðeins fleiri smit og aðeins færri takmarkanir. Á móti verður að vinna mikið við smitrakningu og setja nægileg úrræði í það,“

hefur Politiken eftir honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún varð ekkja fyrir áratug – Nú gengur hún með barn heitins eiginmanns síns

Hún varð ekkja fyrir áratug – Nú gengur hún með barn heitins eiginmanns síns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan beið í þrjá áratugi – Í síðustu viku gerðist það loksins

Lögreglan beið í þrjá áratugi – Í síðustu viku gerðist það loksins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór ölvuð á rafskútu og það endaði skelfilega – Gæti fengið 20 ára fangelsi

Fór ölvuð á rafskútu og það endaði skelfilega – Gæti fengið 20 ára fangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breskur göngumaður fær himinháan reikning eftir að honum var bjargað með þyrlu

Breskur göngumaður fær himinháan reikning eftir að honum var bjargað með þyrlu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ótrúlegur svikahrappur – Þær vissu ekkert

Ótrúlegur svikahrappur – Þær vissu ekkert
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjasta uppátæki Trumps vekur athygli – Gerði þessar breytingar á veggjum Hvíta hússins

Nýjasta uppátæki Trumps vekur athygli – Gerði þessar breytingar á veggjum Hvíta hússins