fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Maður lést í bruna í húsbíl í dag – Lögregla leitar liðsinnis almennings við rannsókn málsins

Heimir Hannesson
Laugardaginn 10. október 2020 22:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður lést er eldur kom upp í húsbíl í landi Torfastaða í Grafningi í Árnessýslu í dag.

Lögregla fékk tilkynningu skömmu eftir hádegi um mikið brunninn húsbíl. Segir í tilkynningu lögreglu um málið sem birt er nú í kvöld að lögregla hafi í fyrstu talið mögulegt að maður hafi verið í bílnum þegar eldurinn kom upp. Vettvangsrannsókn virðist hafa leitt í ljós að líkamsleifar manns á fertugsaldri voru í bílnum. Hefur lögregla tilkynnt aðstandendum mannsins um málið.

Auðkenni mannsins eru enn sem komið er óstaðfest, og kom kennslanefnd ríkislögreglustjóra að rannsókn á vettvangi í dag.

Að vettvangsrannsókn í dag komu lögreglumenn af Suðurlandi, tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, réttarmeinafræðingur og, sem fyrr segir, fulltrúar kennslanefndar ríkislögreglustjóra.

Eldsupptök eru enn ókunn. Lögregla óskar eftir að þeir sem kunna að hafa orðið varir við eld eða reyk á þessum slóðum í nótt eða í byrjun dags eða hafi aðrar upplýsingar sem kunna að skipta rannsókn málsins máli hafi samband við lögreglu á Facebook, í síma 444-2000 eða með tölvupósti á sudurland@logreglan.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast