fbpx
Laugardagur 14.mars 2026
Pressan

Tuborg aflýsir J-deginum

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 2. september 2020 11:05

Skjáskot af auglýsingu jólabjórs Tuborg. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danski bjórframleiðandinn Carlsberg, sem á Tuborg, hefur aflýst hinum svokallaða J-degi í ár, að minnsta kosti að hluta. Þetta er mörgum Dönum eflaust mikið áfall en dagurinn mikilvægur hluti af komu jólanna hjá mörgum.

Á J-deginum, sem er alltaf fyrsti föstudagurinn í nóvember, er jólabjór Tuborg settur á markaðinn og má hefja sölu hans klukkan 20.59, ekki mínútu fyrr. Auk þess fer starfsfólk Tuborg um í bæjum og borgum og dreifir bjór ókeypis til fólks.

Þetta er áratugagömul venja sem hefur notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina. Allt frá 1984 hefur sama auglýsingin runnið yfir sjónvarpsskjái Dana og er óhætt að segja að hún hafi öðlast einhverskonar hefðarstöðu í dönsku samfélagi. Ekstra Bladet hefur eftir talsmanni Carlsberg að það hafi ekki verið auðveld ákvörðun að aflýsa J-deginum en það sé einfaldlega ekki rétt að halda fast í hann að þessu sinni vegna ástandsins.

Bjóráhugamenn þurfa þó ekki að örvænta um jólabjórinn því hann mun eins og alltaf koma í sölu á J-deginum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Opna samtalið við Rice
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump segir stríðið svo gott sem búið

Trump segir stríðið svo gott sem búið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Maður fannst látinn í bifreið sinni – Fyrst grunaði lögreglu ekkert saknæmt en nú hefur eiginkonan verið handtekin

Maður fannst látinn í bifreið sinni – Fyrst grunaði lögreglu ekkert saknæmt en nú hefur eiginkonan verið handtekin