fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Frosti hjólar í „apaheilann“ á hvíta Toyota-bílnum: „Sumir eru bara fæðingarhálfvitar“

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 14. desember 2017 09:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason vandar ökumanni hvítrar Toyotu-bifreiðar ekki kveðjurnar í bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Þar skrifar Frosti um umferðarmenninguna á Íslandi og mikilvægi þess að sýna stillingu í umferðinni.

Frosti segir að það geti reynst góður mælikvarði á geðheilsu manna hversu vel þeir kunna að bregðast við áreiti í umferðinni á götum höfuðborgarsvæðisins. Sjálfur hafi hann lært að mikilvægt sé að halda ró sinni, sýna þolinmæði og stillingu.

„Þrátt fyrir að hafa aldrei trúað á neitt sem kalla megi æðri máttarvöld þykir jafnvel mér, trúvillingnum, viðeigandi að kyrja þar stundum æðruleysisbænina góðu, en hún minnir á að stundum reynist best að sætta sig bara við það sem maður ekki fær breytt.“

Frosti bendir réttilega á að við eigum að forðast að láta skapið hlaupa með okkur í gönur. Það valdi skærum og illdeilum sem við getum vel verið án í okkar litla samfélagi.

„Þess vegna er gott að hafa í huga að öll höfum við gengið í gegnum sama umferðarskóla og þreytt sameiginlegt próf til ökuréttinda. Það sameinar okkur öll í lífsins ólgusjó og hjálpar okkur að komast klakklaust í gegnum frumskóginn sem samgöngukerfi landsins er,“ segir Frosti áður en hann veður í ökumann sem varð á vegi hans í gær.

„Það var því með nokkuð ævintýralegum ólíkindum að fylgjast með apaheilanum á hvíta Toyota Hybrid bílnum sem ók norður eftir Reykjanesbrautinni í morgun. Manngerpið var á undan mér í aðrein að brautinni en í stað þess að ná upp hraða umferðarinnar, gefa stefnuljós og sveigja svo varlega inn í strauminn ákvað fíflið að aka á fimm kílómetra hraða og bíða þess að bílar á hraðbrautinni myndu nema staðar til að hleypa honum inn sem þeir gerðu auðvitað ekki. Í huga mínum hélt ég inni flautunni og gargaði hressilega á kauða. Sumir eru bara fæðingarhálfvitar sem eiga alls ekki að vera með ökuréttindi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Leikarinn nær óþekkjanlegur og samsæriskenningar farnar á flug – „Ekki séns í helvíti að þetta sé sama manneskjan“

Leikarinn nær óþekkjanlegur og samsæriskenningar farnar á flug – „Ekki séns í helvíti að þetta sé sama manneskjan“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Áhugaverð tillaga Wenger fær byr undir báða vængi

Áhugaverð tillaga Wenger fær byr undir báða vængi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“