Söngkonan Ariana Grande hefur á samfélagsmiðlum haft á sér orðspor fyrir að vera með stjörnustæla. Þetta orðspor hefur hún fengið fyrir að svara fyrir gagnrýni og standa með sjálfri sér. Í nýlegu viðtali við Zane Lowe hjá Apple Music sagði hún að henni sárnaði gagnrýnin og hún hefði leitt til þess að Ariana er hikandi við að veita viðtöl.
„Ég hætti að mæta í viðtöl í frekar langan tíma af því að mér fannst alltaf , þegar ég komst í aðstæður þar sem einhver reyndi að fá mig til að segja eitthvað sem gæti orðið að smellubeitu, eða snúa út úr orðum mínum með öðrum hætti, að ég þyrfti að verja mig. Og þá var ég sögð vera með stjörnustæla. Mér fannst það bara ekki sanngjarnt.“
Ariana benti á að ef karlmaður kæmi fram með álíka hætti og hún þá yrði hann seint sagður með stjörnustæla fyrir að hafa skoðanir og vera ekki feiminn við að tjá þær.
„Það er eins og þegar menn tjá skoðanir sínar, verja sig, eru að stýra einhverju eða gagnrýna eitthvað, þá þykja þeir frábærir. Algjörir snillingar. En það er ekki það sama með konur, en ég vona að það verði ekki alltaf þannig.“
Ariana viðurkennir að þessi stjörnustæla stimpill hafi fengið hana til að efast um sjálfa sig. Ætti hún ekki að tjá skoðanir sínar? Ætti hún ekki að tjá sig yfir höfuð? Þessar spurningar sitji í henni og fái hana til að vilja hafa hægt um sig.
„Þetta er ekki eitthvað sem ég finn stöðugt fyrir, en þó nokkuð mikið. En ég er að reyna að hugsa bara „til fjandans með þetta“ og sleppa takinu af þessari vanlíðan. Því ég hef mikið að segja og ég nýt þess að tala við fólk. Ég vil vera í viðtölum og deila með fólki og ekki vera hrædd við sjálfa mig. En þetta er verk í vinnslu.“