fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Fókus

Ótrúleg saga bakpokaferðalangs varð að kvikmynd

Fókus
Mánudaginn 4. maí 2020 21:00

Leikarinn Daniel Radcliffe leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Jungle. Hér hann með aðalmanninun Yossi Ghinsberg (t.h)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í þrjár vikur árið 1981 ferðaðist bakpokaferðalangurinn Yossi Ghinsberg um Suður Ameríku. Hann lifði af hungur, sársauka, eitraða snáka og var nær drukknaður. Saga hans er ótrúleg og hefur Yossi sjálfur kallað hana kraftaverk.

Yossi var 22 ára og hafði lokið herskyldu sinni við Ísraelska herinn. Hann hafði alltaf dreymt um að lenda í ævintýrum og kanna ótroðnar slóðir og heiminn svo hann skellti á sig bakpoka og lagði af stað.Yossi kynntist fljótlega Svissneskum ferðalangi á ferðum sínum um heiminn. Hann hét Marcus Stamm og ferðuðust þeir saman til Boliviu þar sem þeir hugðust leita að gulli. Þar kynnast þeir Karl Ruprechter frá Austurríki. Karl sagði þeim félögum að hann væri reyndur könnuður og hefði sérstaklega mikla reynslu af því að ferðast um frumskóga. Karl sagði Yossi allt um ævintýri sín og stakk því að honum að hann ætti að koma með þeim í gullleitar leiðangur um frumskóginn. Fljótlega bættist svo ameríkaninn Kevin Gale og mynduðu þeir fjórir hóp.

Ólíkir ungir menn

Allir komu ungu mennirnir frá ólíkum löndum og með ólíka persónuleika og það var því gefið að það yrðu árekstar í þessum leiðangri. Félagarnir höfðu ferðast um regnskóginn í nokkrar vikur og hafði það gengið nokkuð vel. Umhverfið var þó erfitt og það var spenna í hópnum. Maturinn var mjög einfaldur en fjórmenningarnir skutu meðal annars apa og borðuðu. Yossi bölvaði sjálfum sér oft fyrir að hafa haldið í þessa ferð og óskaði þess að vera heima. Það leið ekki á löngu þar til upp kom ágreiningur innan hópsins. Fjórmenningarnir höfðu byggt lítinn fleka til þess að ferðast niður nærliggjandi á. Það var hættulegt og Karl, sem hafði leitt hópinn var mjög ákveðinn í að það fælist of mikil áhætta í því að nota flekann og vildi halda áfram fótgangandi.

Yossi var sammála Karli og halda ferðinni áfram gangandi en Kevin stakk upp á að þeir tveir myndu halda áfram á flekanum. Yossi var hissa en ákvað að slá til þar sem hann og Kevin náðu best saman af hópnum og var mikið traust á milli þeirra. Það var þó stutt í að hörmungarnar byrjuðu. Fljótlega misstu þeir stjórn á flekanum nálægt stórum fossi. Kevin náði einhvernveginn að komast í land en Yossi fór niður með fossinum. Þetta var rússíbanareið sem stóð yfir í 15-20 mínútur og eina sem Yossi gat gert var að reyna halda höfðinu upp úr vatninu. Hann náði ekki að verða hræddur því hann gat eingöngu einbeitt sér að því að ná andanum. Þegar hann komst loks að landi þá upplifði hann gífurlega gleði og þakklæti fyrir að vera á lífi. Nokkrum sekúndum síðar heltist yfir hann örvæntinginn og hræðslan. En jafnvel þá trúði hann að það yrðu bara nokkrir klukkutímar þar til Kevin myndi finna hann. Því miður var það ekki raunin og eftir nokkra daga áttaði Yossi sig á því að hann væri aleinn.

Tvö kraftaverk

plakat myndarinnar sem byggir á þessu ótrúlega ævintýri

Yossi lifði af árás um nótt frá Jaguar með því að búa til hálfgerða eldvörpu með því að bera eld að skordýraeitri sem hann sprautaði í átt að dýrinu. Hann át ávexti og hrá egg sem hann fann í hreiðrum frumskógar fugla. Eftir nokkra daga gangandi í þá átt sem hann hélt að næsti bær væri fann hann fyrir auknu sjálfstrausti. Hann fann fyrir einhverjum ótrúlegum krafti innra með sér og vildi alls ekki gefast upp. Þessi bjartsýni varði þó ekki lengi. Það kom hræðilegt flóð og Yossi drukknaði næstum. Síðasta vika hans í frumskóginum var erfiðust þar sem hann var orðinn mjög veikburða. Það var enginn matur eftir og ekkert ætilegt í grennd. Hann átti erfitt með gang þar sem iljar hans voru orðnar að einu svöðusári. Á einum tímapunkti hristi hann tré sem var fullt af eldmaurum yfir höfuðið á sér bara til þess að finna fyrir einhverjum sársauka sem myndi trufla frá illa förnum fótum hans til að geta haldið áfram göngunni. Og svo gerðust tvö “kraftaverk”. Í tvo daga fylgi stelpa Yossi um frumskóginn. Hún birtist við hlið hans. Það var svosem ekki meira kraftaverk en það að ímyndunarafl Yossi hafði búið hana til þar sem hún birtist akkurat á þeim tímapunkti sem Yossi hafði brotnað niður og gefist upp. Stelpan veitti honum huggun og kraft til að halda áfram. Seinna kraftaverkið var björgun hans. Kevin hafði fundið leið til baka og komist aftur til siðmenningar. Hann og nokkrir heimamenn komu á bát niður ánna í leit að Yossi. Þeir höfðu gefið upp alla von enda liðnar þrjár vikur og ákveðið var að snúa bátnum við. Það gekk ekki sem skyldi og enginn staður fannst til þess að snúa bátnum við. Þeir neyddust til að halda áfram og finna stað. Af einskærri tilviljun þegar verið var að snúa bátnum lítur Kevin inn í skóginn og sér að búið var að gera einhverskonar kofa úr greinum.Skyndilega kom einhver út úr kofanum og Kevin trúði ekki eigin augum. Þetta var Yossi. Amazon skógurinn er risavaxinn og er þetta ótrúleg tilviljun að Kevin hafi komið auga á Yossi. Marcus Stamm og Karl Ruprechter fundust aldrei og var gert ráð fyrir að þeir hefðu látist inn í skóginum. Yossi og Kevin eru enn þann daginn í dag bestu mátar. Yossi Ghinsberg er í dag rithöfundur, landkönnuður og frumkvöðull. Hann hefur alltaf sagt að reynsla hans í frumskóginum hafi breytt lífi hans, hann hafi orðið að betri manni og njóti litlu og einföldu hlutanna betur. Tilfinningin um að hafa snert dauðann hefur aldrei farið frá honum. Yossi gaf út bók um reynslu sína og gefin var út bíómynd sem byggð var á sögu hans árið 2017, Jungle.

Nánari útlistingu á ævintýrum Yossi og félaga má nálgast á mánudaginn á vef DV í formi Hlaðvarpsins HÁSKI, þar sem Unnur Regína Gunnarsdóttir fer yfir ævintýrið.

Unnur Regína Gunnarsdóttir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Kynlífsmyndband Pamelu Anderson dregið fram í dagsljósið á ný – Dómsmál vegna ummæla um reðurstærð

Kynlífsmyndband Pamelu Anderson dregið fram í dagsljósið á ný – Dómsmál vegna ummæla um reðurstærð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dánarorsök Pulp Fiction leikarans opinberuð

Dánarorsök Pulp Fiction leikarans opinberuð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stebbi fagnar stórafmæli með söngveislu

Stebbi fagnar stórafmæli með söngveislu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Raunveruleikastjarnan útskýrir hvernig hún afskræmdist í framan – „Það er glatað að eldast um 20 ár á einu bretti“

Raunveruleikastjarnan útskýrir hvernig hún afskræmdist í framan – „Það er glatað að eldast um 20 ár á einu bretti“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dánarorsök dótturinnar opinberuð

Dánarorsök dótturinnar opinberuð