fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Eyjan

Evrópusambandið bannar innflutning lækningartækja til Íslands vegna Covid-19 – „Með öllu ólíðandi“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 19. mars 2020 14:55

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég ætla að gera ráð fyrir að Evrópusambandið standi við skuldbindingar sínar gagnvart EFTA-ríkjunum og banni ekki sölu á þessum útbúnaði til okkar,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, við RÚV, vegna ákvörðunar Evrópusambandsins um að banna birgjum í ESB löndunum að selja andlitsgrímur og hlífðarbúnað til annarra landa sem ekki eru í ESB. Ísland er meðal þeirra landa en mikil eftirspurn er eftir þessum vörum vegna Covid-19 faraldursins.

Morgunblaðið greindi frá því í dag að Dynjandi, sem selur slíkar vörur hér á landi, hafi fengið þessi skilaboð frá birgjum sínum.

Guðlaugur segist þegar hafa mótmælt þessu:

„Við höfum í gær og í dag komið þeim sjónarmiðum kirfilega á framfæri við ráðamenn ESB. Við eigum jafnframt náið og gott samstarf við stjórnvöld í Noregi og annarra EFTA-ríkja um að koma þessu máli í réttan farveg sem allra fyrst. Það er með öllu ólíðandi að íslenskir innflytjendur fái þau svör hjá sínum birgjum að bannað sé að flytja vörurnar sem um ræðir til Íslands. Bannið gengur gegn öllu því sem EES-samningurinn byggir á og við gerum ráð fyrir því að úr þessu leysist mjög fljótt,“

segir Guðlaugur Þór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Ofurskattar íhaldsaflanna

Sigmundur Ernir skrifar: Ofurskattar íhaldsaflanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir Valhöll til sölu

Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir Valhöll til sölu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Hver er merkasti forsætisráðherra aldarinnar?

Björn Jón skrifar: Hver er merkasti forsætisráðherra aldarinnar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennafrídagurinn breytti öllu

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennafrídagurinn breytti öllu