Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gekk á fund Guðna Th. Jóhannessonar klukkan 10 í morgun. Guðni mun í dag funda með forystumönnum þeirra flokka sem eiga fulltrúa á Alþingi, en fundirnar verða haldnir á Bessastöðum í dag.
Bjarni hvað hefur þú að segja fyrir fundinn, spurði fréttamaður RÚV:
„Ja, ekki neitt,“ var svar forsætisráðherra.
Fundur forseta og Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, verður klukkan 11.
Fundur forseta og Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, verður klukkan 12.
Fundur forseta og Loga Más Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, verður klukkan 13.
Fundur forseta og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, verður klukkan 14.
Fundur forseta og Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, fulltrúa Pírata, verður klukkan 15.
Fundur forseta og Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, verður klukkan 16.
Fundur forseta og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, verður klukkan 17.