fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
433Sport

Óvíst hvort Jóhann Berg og Rúnar geti spilað leikina mikilvægu í nóvember

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 13. október 2019 10:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland mætir Andorra í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli á mánudag. Um er að ræða seinni leikinn í leikvikunni sem nú stendur yfir, en íslenska liðið tapaði með eins marks mun gegn heimsmeisturum Frakka í Laugardalnum á föstudag, eins og kunnugt er. Staðan í riðlinum er þannig að Tyrkir og Frakkar eru með 18 stig, en Ísland með 12 stig. Ísland á enn möguleika á því að komast EM með því að hafna í einu af tveimur efstu sætum riðilsins. Takist Frökkum að vinna sigur á Tyrkjum á mánudag og Íslandi að vinna sigur á Andorra þá er allt opið fyrir seinustu leikvikuna, sem fram fer í nóvember, þegar Ísland mætir Tyrkjum og Moldóvum ytra.

Aron Elís Þrándarson hefur verið kallaður inn í leikmannahóp A landsliðs karla fyrir leikinn við Andorra í undankeppni EM 2020 á mánudag. Jóhann Berg Guðmundsson og Rúnar Már Sigurjónsson meiddust í leiknum gegn Frökkum á föstudag og geta ekki verið með gegn Andorra.

Ísland á verkefni í nóvember gegn Moldóvu og Tyrklandi, það er óvíst hvort Jóhann og Rúnar verði leikfærir þá og þá er nánast útilokað að Aron Einar Gunnarsson verði með.

,,Ég veit ekki hvort þeir verði með í nóvember, það er stórt spurningamerki,“
sagði Erik Hamren um það hvort Jóhann og Rúnar gætu leikið í nóvember. Um er að ræða leiki sem gætu tryggt íslenska liðinu sæti á EM.

Báðir tognuðu aftan í læri. ,,Svona meiðsli taka yfirleitt 3-6 vikur að jafna sig, við sjáum hvað gerist. Það verður tæpt, við vitum meira þegar líður á.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Hrafnkell ómyrkur í máli og trúði vart því sem hann sá – „Það var bara fáránlegt að horfa upp á þetta“

Hrafnkell ómyrkur í máli og trúði vart því sem hann sá – „Það var bara fáránlegt að horfa upp á þetta“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina