fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Gerrard spáir því að þessir maður missi vinnuna – Telur það ekki sanngjarnt

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid stendur frammi fyrir erfiðum tímum eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag.

Real tapaði 4-3 gegn Bayern Munich í seinni leik liðanna og samanlagt 6-4. Þrátt fyrir betri frammistöðu en í fyrri leiknum virtist liðið stefna í framlengingu áður en Luis Diaz og Michael Olise tryggðu Bayern sigur með mörkum í uppbótartíma.

Úrslitin þýða að Real Madrid er líklegt til að enda tímabilið án titils, en liðið er einnig úr leik í bikarkeppninni og er níu stigum á eftir Barcelona í deildinni þegar sjö umferðir eru eftir.

Alvaro Arbeloa tók við liðinu í janúar, en framtíð hans er nú óviss en Steven Gerrard telur að hann verði nú rekinn.

Fyrrum leikmaður Liverpool, Steven Gerrard, telur þó ósanngjarnt ef hann missir starfið. „Ég vorkenni honum, liðið var miklu betra en í síðasta leik og spilaði frábærlega,“ sagði Gerrard.

Hann telur að Arbeloa eigi ekki skilið að vera látinn fara miðað við frammistöðuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar