fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Jóhann Berg og Rúnar farnir heim: Aron Elís kallaður inn

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 13. október 2019 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland mætir Andorra í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli á mánudag. Um er að ræða seinni leikinn í leikvikunni sem nú stendur yfir, en íslenska liðið tapaði með eins marks mun gegn heimsmeisturum Frakka í Laugardalnum á föstudag, eins og kunnugt er. Staðan í riðlinum er þannig að Tyrkir og Frakkar eru með 18 stig, en Ísland með 12 stig.

Ísland á enn möguleika á því að komast EM með því að hafna í einu af tveimur efstu sætum riðilsins. Takist Frökkum að vinna sigur á Tyrkjum á mánudag og Íslandi að vinna sigur á Andorra þá er allt opið fyrir seinustu leikvikuna, sem fram fer í nóvember, þegar Ísland mætir Tyrkjum og Moldóvum ytra.

Aron Elís Þrándarson hefur verið kallaður inn í leikmannahóp A landsliðs karla fyrir leikinn við Andorra í undankeppni EM 2020 á mánudag.

Jóhann Berg Guðmundsson og Rúnar Már Sigurjónsson meiddust í leiknum gegn Frökkum á föstudag og geta ekki verið með gegn Andorra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool