fbpx
Miðvikudagur 30.apríl 2025
Eyjan

Þingmaður leitar húsráða á Facebook vegna þvagsýrugigtarkasts í stóru tá – Myndir

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 9. október 2019 22:46

Ásmundur Friðriksson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ákvað að leita á náðir samfélagsmiðla í kvöld og fá aðstoð Facebook vina vegna þvagsýrugigtarkasts í stórutá á vinstri fæti. Birtir hann mynd af tánni, sem ber þess merki að ekki sé allt með felldu, en tekið skal fram að Ásmundur er þó ekki í bráðri lífshættu, þó svo afleiðingar þvagsýrugigtar geti verið alvarlegar og verkirnir miklir þegar köstin ríða yfir:

„Ég hélt ég væri laus við þvagsýrugigtina þennan fjanda sem vakti mig snemma í morgun. Ég er löngu hættur að taka lyf til að halda henni niðri svo þetta kom á óvart. Eftir slatta af verkjatöflum og litla athygli á fundum fór ég heim og lagði mig. Steinlá í 3 tíma og vonandi verður þetta þolanlegt á morgun. Er einhver með gott húsráð?”

spyr Ásmundur.

Neðst í fréttinni má sjá fót Ásmundar sem og dæmi um hvernig fætur geta orðið ef ekkert er að gert.

Eyjan varar viðkvæma við myndunum, sem gætu vakið óhug.

Hákarlalýsi, fíflablöð og ostabann

Ekki stendur á húsráðunum í athugasemdakerfinu, en Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir Ásmundi einfaldlega að leita læknis.

Aðrir ráðleggja honum að drekka mikið vatn og borða lítið. Enn aðrir ráðleggja honum að sneiða alfarið hjá því að borða ost. Einnig er honum ráðlagt að borða blöð af fífil jurt eða drekka hákarlalýsi.

Þá er Ásmundi bent á að taka ýmis lyf sem og pensillín, sýklalyf og bólgueyðandi lyf.

Getur orðið alvarlegt

Þess má geta að samkvæmt Vísindavefnum byrjar þvagsýrugigt oftast skyndilega með miklum verkjum og bólgu í einum lið. Sá liður sem oftast verður fyrir barðinu á þessu er fremsti liður stóru táar en aðrir liðir geta átt í hlut, til dæmis ökkli, hné, úlnliður eða olnbogi. Einkennin líkjast einna helst sýkingu með bólgu, roða og hita og staðurinn er mjög viðkvæmur við snertingu.

Ef ekkert er að gert getur hún valdið miklum skaða í liðum og nýrum, sem og öðrum líffærum. Orsakir hennar eru oftast óþekktar en hún herjar í 90 prósent tilfella á karlmenn og oftast eftir þrítugt.

Varðandi lækningu þá segir á Vísindavefnum:

„Í köstum eru notuð ýmis bólgueyðandi lyf, sem geta stytt kastið verulega, og mikilvægt er að hvíla bólgna liði. Til að minnka magn þvagsýru í líkamanum og minnka þannig hættu á þvagsýrugigtarköstum eru til lyf sem draga úr myndun þvagsýru og auka útskilnað hennar. Þeir sem eru með þvagsýrugigt ættu að forðast lyf sem hindra útskilnað þvagsýru í nýrum en það eru einkum þvagræsilyf og aspirín.“

Eyjan óskar Ásmundi góðs og skjóts bata.

VARÚÐ!!! HÉR AÐ NEÐAN BIRTAST MYNDIR AF FÆTI ÁSMUNDAR OG AF AFMYNDUÐUM FÆTI 

Fótur Ásmundar

Mynd af Vísindavefnum sem sýnir hvernig liðir geta orðið útleiknir ef ekkert er að gert.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn