fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fókus

Kvenfélagskonur Grímnes- og Grafningshrepps umhverfisvænar

Fjölnota innkaupapokar á öll heimili

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 3. júní 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvenfélag Grímnes- og Grafningshrepps hefur síðastliðið ár unnið að umhverfisverkefninu „Ekki kaupa rusl!“ Markmiðið með verkefninu er að auka vitundarvakningu hjá íbúum Grímsnes- og Grafningshrepps og í vikunni fengu íbúar hreppsins fjölnota innkaupapoka frá kvenfélaginu, en þeir eru saumaðir úr gömlu gardínuefni og gömlum dúkum.

„Tildrög verkefnisins voru að á vorfundi félagsins í fyrra fengum við fræðslufyrirlestur um rusl, hversu mikið félli til, hvernig ruslmagn tengist efnahagssveiflum í samfélaginu, hvernig það er flokkað og hvar er hægt að gera betur svo að dæmi séu nefnd,“ segir Laufey Guðmundsdóttir, formaður kvenfélagsins.

Ekki kaupa rusl

Það sem stóð upp úr fyrirlestrinum að sögn Laufeyjar var setningin „Ekki kaupa rusl“, það er ekki kaupa of stórar pakkningar þar sem innihaldið verður aldrei klárað og minni einingar eru til, ekki kaupa hluti, föt, mat og annað sem ekki verður notað og fer þar af leiðandi beint í ruslið. „Einnig komu fram upplýsingar um það gífurlega magn af matvælum og lífrænum úrgangi sem fer beint í ruslatunnuna okkar, en sem hægt væri að koma í veg fyrir með vandaðri innkaupum, betri flokkun og endurnýtingu eins og með moltugerð eða hreinlega með því að fá sér hænur sem svo framleiða egg fyrir þig í staðinn,“ segir Laufey.

Gömul efni fá framhaldslíf

„Síðan áskotnaðist kvenfélaginu mikið magn af efni í alls kyns litum og mynstri auk gömlu dúkanna úr félagsheimilinu,“ segir Laufey. „Út frá því fórum við að huga að hvernig þetta efni myndi nýtast best og kviknaði sú hugmynd að sauma taupoka úr þessu og færa íbúum sveitarfélagsins þá að gjöf og þannig hvetja þá til að lágmarka plastpokanotkun við innkaup sem dæmi.“ Félagskonur skiptu með sér verkum, lituðu efni, sniðu pokana til, merktu og saumuðu.

„Þú mátt nota mig aftur og aftur og aftur og aftur …,“ stendur meðal annars á pokunum.
Skemmtilegar áletranir „Þú mátt nota mig aftur og aftur og aftur og aftur …,“ stendur meðal annars á pokunum.

Íbúar hrifnir af verkefninu

„Við nýttum daginn Borg í sveit til að dreifa fyrsta hollinu af pokum á heimilin í Grímsnes- og Grafningshreppi og hvöttum um leið íbúa til að nota fjölnota poka. Það var tekið vel á móti okkur og gaman að heyra hvað margir notast nú þegar við fjölnota poka,“ segir Laufey sem þakkar fyrir góðar móttökur. Sannarlega gott framtak hjá Kvenfélagskonum í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Anna Margrét Sigurðardóttir og Ágúst Gunnarsson á Stærri-Bæ ánægð með pokann sinn.
Ánægðir íbúar Anna Margrét Sigurðardóttir og Ágúst Gunnarsson á Stærri-Bæ ánægð með pokann sinn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“