fbpx
Föstudagur 26.september 2025
Eyjan

Bergþór Ólason: „Hvað ætli Eyþór hafi gert Bjarna?“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 30. september 2019 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það þótti undarleg sú mikla leynd sem var yfir samkomulagi sem forsætis-, fjármála- og samgönguráðherra undirrituðu með borgar- og bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu í liðinni viku. Þörfin fyrir leyndina varð þó öllum ljós þegar undirritað plaggið birtist loks sl. fimmtudag. Fyrstu viðbrögð undirritaðs þegar plöggin voru birt voru að hugsa „Hvað ætli Eyþór hafi gert Bjarna?“en eftir að hafa lesið samkomulagið vandlega situr eftir spurningin „Hvað hafa skattgreiðendur gert ríkisstjórninni?“

Svo ritar Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins í Morgunblaðið í dag. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík er á móti borgarlínu, en bæjarstjórar nágrannasveitarfélaganna, sem allt eru sjálfstæðismenn, eru henni fylgjandi.

Sjá einnig: Oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn sagður einn úti í horni – Fjarvera hans fór ekki framhjá samflokksmönnum hans

Bergþór segir að ríkið hafi látið plata sig illilega og tekur einnig undir orð formanns síns, sem sagt hefur að ríkið sé að fjármagna kosningaloforð Samfylkingarinnar:

„Í samkomulaginu, sem væri réttara að kalla viljayfirlýsingu, tekst á sex blaðsíðum að færa ríkinu skyldur upp á rúma 100 milljarða – eitt hundrað þúsund milljónir! En skyldur sveitarfélaganna eru sáralitlar. Það verður sérstakt rannsóknarverkefni að finna út úr því hvernig samningamenn ríkisins létu plata sig með þessum hætti. Höfuðið var svo bitið af skömminni með því að ramma fullnaðarsigur borgarstjóra inn með því að sleppa borginni við að takast á hendur skuldbindingar um legu Sundabrautar og yfirhöfuð að því mikilvæga verkefni verði sleppt úr gíslingu borgaryfirvalda.“

Bergþór nefnir einnig að ekkert í plagginu sé nýtt af nálinni, utan þess að setja hluta Sæbrautar í stokk:

„Öll önnur verkefni voru á áætlun en höfðu liðið fyrir samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 2012 um stórframkvæmdastopp á höfuðborgarsvæðinu. Viðbótin í „pakkanum“ felst í verkefnum tengdum hinni mjög svo óskilgreindu borgarlínu. Vegna hennar skal sækja 60 milljarða (nettó) í vasa bifreiðaeigenda.“

Strætó og borgarlína

Bergþór segir gjaldtökuhugmyndirnar fyrir framkvæmdunum ennþá verr skilgreindar en borgarlínan:

„Í samkomulaginu undirgangast ráðherrarnir að flýti- og umferðargjöld verði skilgreind og innheimt til að ná fram markmiðum samkomulagsins. Það var ekki liðinn sólarhringur frá undirritun þegar fjármálaráðherra mætti í prýðisgott viðtal á mbl.is þar sem hann talaði fyrir því að sala Íslandsbanka gæti fjármagnað samkomulagið. Til viðbótar við þær upphæðir sem þegar hafa verið nefndar var undirritað hliðarsamkomulag varðandi rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Þar er lagður grunnur að því að sækja 12 milljarðar frá ríkissjóði til viðbótar við þá 10 sem ríkissjóður hefur þegar ráðstafað í rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu á grundvelli áðurnefnds samkomulags um stórframkvæmdastopp. Hingað til hafa 7 milljarðar af áður áætluðu framkvæmdafé Vegagerðarinnar farið í rekstur Strætó bs. með þeim árangri að hlutfall farinna ferða með strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki haggast á samningstímanum, það var 4,0% árið 2012 og er enn 4,0%! Það verður dýr lexía ef árangurinn verður svipaður af borgarlínuævintýrinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Hálf öld frá stofnun Dagblaðsins

Björn Jón skrifar: Hálf öld frá stofnun Dagblaðsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Þetta eru veiðigjöld bankakerfisins“

„Þetta eru veiðigjöld bankakerfisins“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Vilja gera Lilju að formanni – Þórólfur plottar með Sjöllum og Miðflokki

Orðið á götunni: Vilja gera Lilju að formanni – Þórólfur plottar með Sjöllum og Miðflokki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ari ráðinn markaðsstjóri Emmessís

Ari ráðinn markaðsstjóri Emmessís
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur slær á létta strengi eftir atvik í gær – „Ef ég var einhvern tímann að íhuga að kippa lýðveldinu úr sambandi“

Hildur slær á létta strengi eftir atvik í gær – „Ef ég var einhvern tímann að íhuga að kippa lýðveldinu úr sambandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Menningarstríðið er völundarhús

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Menningarstríðið er völundarhús
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framkvæmdastjóri N1: Skortur innviða flöskuháls fyrir rafvæðingu bílaflotans

Framkvæmdastjóri N1: Skortur innviða flöskuháls fyrir rafvæðingu bílaflotans
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórdís Lóa ætlar ekki að bjóða sig fram í næstu kosningum

Þórdís Lóa ætlar ekki að bjóða sig fram í næstu kosningum