fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Alltaf á hvolfi sem krakki

Karitas Harpa með nýtt lag í samstarfi við Daða Frey

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 23. júní 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karitas Harpa Davíðsdóttir, 26 ára Selfyssingur, kom, sá og sigraði í annarri þáttaröð The Voice Ísland í febrúar. Í dag, föstudaginn 23. júní, frumflytur hún nýtt lag „Enn eitt kvöld,“ sem er samstarfsverkefni hennar og vinar hennar, Daða Freys Péturssonar, sem varð í öðru sæti Söngvakeppni sjónvarpsins 2017. Karitas Harpa svarar spurningum vikunnar.

Fædd og uppalin? Fædd á Landspítalanum, uppalin hér og þar í rauninni, en í hnotskurn: fyrstu fjögur árin í Bandaríkjunum, tvö ár í Hafnarfirði, sjö ár í Breiðholti, tvö ár í Hveragerði og síðan á Selfossi meira og minna eftir það.

Mér finnst gaman að syngja, borða og tala.

Síðasta kvöldmáltíðin væri líklega fullt borð af forréttum.

Brennd eða grafin? Fryst eins og Walt Disney.

Hvað gerirðu milli kl. 17–19? Þá er ég líklegast að horfa á Peppa Pig eða álíka örvandi sjónvarpsefni.

Samfélagsmiðlar eða dagblöðin? Samfélagsmiðlar þó svo ég hafi alltaf gaman af því að fletta í gegnum blöðin með kaffibolla í annarri.

Hvað ertu með í vinstri vasanum? Kusk.

Bjór eða hvítvín? Hvítvín, er haldin þeirri bölvun að þykja bjór ekki góður.

Hver stjórnar fjarstýringunni á þínu heimili? Ómar Elí, tæplega þriggja ára.

Hvernig var fyrsti kossinn? Vá, ég fæ fiðring í magann bara af því að hugsa um hann, en hann var svolítið vandræðalegur, eins og fyrstu kossar eiga að vera, góður samt!

Hver væri titill ævisögu þinnar? Karitas án titils … er hann frátekinn? Þá kannski bara Karitas með titli.

Hver er draumabíllinn? 1960‘s Chevrolet-blæjubíll.

Fyrsta starfið? Stóra systir, illa borgað, var fljót að færa mig yfir á tombóluteppið fyrir utan 10-11 í Breiðholtinu.

Fallegasti staður á landinu? Við eigum ofboðslega fallegt land, ég verð aldrei þreytt á því að keyra Suðurlandið svo hafa þeir sem vaðið hafa alveg inn í Gljúfrabúann við Seljalandsfoss orðið vitni að einhverju undri!

Hvaða ofurkraft værir þú til í að vera með? Það myndi spara mér heilmikinn ferðakostnað ef ég gæti bara flogið.

Gist í fangaklefa? Ekki enn.

Sturta eða bað? Hef ekki átt bað í svona 15 ár svo ég kann það örugglega ekki lengur, sit samt oft í sturtubotninum.

Húðflúr eða ekki? Er ekki með, en langar í!

Hvaða leynda hæfileika hefur þú? Get sett fætur aftur fyrir haus, mjög hentugur hæfileiki.

Hvað fékk þig til að tárast síðast? Örugglega eitthvað Youtube-myndband eða auglýsing sem hafði með börn eða gamalt fólk að gera, „gets me every time.“

Fyrirmynd í lífinu? Í raun bara hver sá sem er samkvæmur sjálfum sér, einlægur og þorir að taka áhættu – gefst ekki upp þótt á móti blási.

Hvaða sögu segja foreldrar þínir endurtekið af þér? Svo margar, var hrikalega óþolandi krakki – aldrei kyrr, alltaf á hvolfi, syngjandi eða talandi, stundum allt í einu.

Ertu með einhverja fóbíu? Fóbíu, líklega ekki, en mig klígjar hrikalega við kartöfluspírum og hrúðurköllum, fæ hroll bara við tilhugsunina.

Hver er besta ákvörðun sem þú hefur tekið? Nýlega var það líklega að slá til og taka þátt í The Voice Ísland, mjög nýlega var það að fá mér kaffi í morgun og leggjast ekki aftur upp í.

Furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Er reynslulítil í þeim heimi, sniglar eiga örugglega vinninginn eins og er.

Hvað er neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Ég man aldrei neitt þegar ég er spurð að þessu, ég hef nefnilega lúmskt gaman af neyðarlegum atvikum og finnst fátt of vandræðalegt til að hlæja ekki bara að því. Kannski þegar ég missti vinkonu mína niður af svölum á annarri hæð. Mér til varnar var hún bundin í þvottasnúruna og reyndist þyngri en ég hélt, svo ég missti takið, hún slasaðist ekki, lenti í runna.

Klukkan hvað ferðu á fætur? Þegar stráksi vaknar, sem er yfirleitt milli 7 og 8.

Leigirðu eða áttu? Er að eltast við drauma mína svo hvorugt, bý hjá mömmu.

Hvaða bók er á náttborðinu? #GIRLBOSS og Múmínálfarnir læra litina.

Með hverjum, lífs eða liðnum, myndir þú vilja verja einni kvöldstund? Mömmu hans pabba eða Ellen DeGeneres, elska‘na!

Hver er fyrsta endurminning þín? Pallurinn okkar í Utah og villikötturinn okkar, hún Flekka, sem við tókum að okkur.

Lífsmottó? Lífið er of hverfult til að láta ekki vaða. Síst af öllu vil ég vera á dánarbeði mínum í eftirsjá.

Uppáhaldsútvarpsmaður/-stöð? Þar sem ég keyri mikið milli Selfoss og Reykjavíkur hlusta ég mikið á útvarpið en það skiptist furðu jafnt milli stöðva, fer í raun eftir tíma dags hvað ég hlusta á. Ég vil líka helst fá spilun á þeim sem flestum svo ég þori ekki að nefna eina frekar en aðra haha.

Uppáhaldsmatur/-drykkur? Svellkalt kók í dós.

Uppáhaldstónlistarmaður/-hljómsveit ? Ég get ekki valið svona, það sem ég hef hlustað mikið á undanfarið er Maggie Rogers, Sigrid, Migos og síðan er Eddi vinur minn Sheeran reyndar alltaf í uppáhaldi, annars elska ég að finna eitthvað nýtt.

Uppáhaldskvikmynd/-sjónvarpsþættir? Ég elska elska Lord of the rings-myndirnar, get horft á þær endalaust! Eins dugleg og ég var einu sinni er ég orðin hrikalega léleg að fylgjast með því sem er í sjónvarpinu, er að horfa á Master of none þessa dagana og líkar mjög vel.

Uppáhaldsbók? Les því miður alltof lítið, mínar „all time favorite“ eru líklega Harry Potter-bækurnar.

Uppáhaldsstjórnmálamaður? Ég á mér ekki uppáhalds í þeim geira.

Karitas Harpa og Daði Freyr eru góðir vinir og hafa nú gefið út lag saman, „Enn eitt kvöld.“
Tónlistarvinir Karitas Harpa og Daði Freyr eru góðir vinir og hafa nú gefið út lag saman, „Enn eitt kvöld.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Í gær

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda