

Romelu Lukaku reyndist hetja Inter Milan um helgina sem spilaði við Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni. Lukaku ættu allir að kannast við en hann samdi við Inter í sumar og kemur frá Manchester United. Lukaku skoraði mark sitt af vítapunktinum í gær og var það seinna mark Inter í 2-1 sigri. Stuðningsmenn Cagliari urðu sér til skammar áður en Lukaku skaut að marki og reyndu að taka hann á taugum.
Það heyrðust mikil apahljóð í stúkunni áður en spyrnan var tekin og vonandi verður félaginu refsað harkalega. Lukaku hefur tjáð sig um þetta atvik. ,,Fótbolti er íþrótt sem á að njóta, við eigum ekki að sætta okkur við fordóma,“ sagði Lukaku á Instagram.
Stuðningsmenn Inter eru hins vegar á því að þetta sé ekki rasismi, stuðningsmenn Cagliari hafi bara verið að reyna að hjálpa sínu liði, með apahljóðum.
Rasismi er mikið vandamál á Ítalíu og koma svona atvik oft upp, á hverju tímabili. ,,Lukaku verður að skilja að stuðningsmenn eru að reyna að hjálpa liði sínu og gera andstæðinga sína stressaða, þetta er ekki talið rasismi,“ sagði hópurinn Curva Nord sem eru hörðustu stuðningsmenn Inter.