Bubbi Morthens var allt annað en sáttur við að lag hans „Þessi fallegi dagur“ hefði ekki komist á lista yfir bestu sumarlög Íslands á Rás 2. „Er nokkuð ísöld, ertu ekki að grínast, ég veit hvað gott Sumarlag er,“ skrifaði kóngurinn á Twitter enda hefur hann mikið til síns máls. Hefur hann á löngum ferli samið aragrúa af góðum lögum fyrir hverja árstíð. Bubba barst stuðningur frá borgarstjóranum Degi B. Eggertssyni sem endurvarpaði tísti með þeim orðum að hann væri hjartanlega sammála.
„Hækka alltaf ósjálfrátt þegar ég heyri það #guiltypleasure“, skrifaði Dagur kíminn enda vafalaust hughreystandi að heyra þær yfirlýsingar ítrekaðar í lagi að maður sé fallegur.
Hjartanlega sammála @BubbiMorthens – hjartanlega sammála. Hækka alltaf ósjálfrátt þegar ég heyri það #guiltypleasure https://t.co/d4b1EcrNtL
— Dagur B. Eggertsson (@Dagurb) May 28, 2017