fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Kennir afurðarstöðvum um væntanlegan lambakjötsskort: „Hafa beinlínis staðið í vegi fyrir því að hér sé nægilegt framboð

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 23. júlí 2019 18:30

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara, sem starfar í atvinnuvegaráðuneytinu, lagði í dag til við landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra að gefinn yrði út tímabundinn innflutningskvóti á lækkuðum tollum til að bregðast við skorti á innlendum lambahryggjum og hryggsneiðum. Tillaga nefndarinnar er að á tímabilinu 29. júlí til 30. ágúst megi flytja inn lambahryggi og sneiðar með 172 króna magntolli, í stað 30% verðtolls og 382 króna magntolls, sem er hinn almenni tollur á þessum vörum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda, sem gert hefur athugasemdir við tímabilið sem fram kemur í tillögum nefndarinnar.

FA bendir á að fjórar vikur séu afar skammur tími; það taki tíma fyrir innflytjendur að finna kjöt af réttum gæðum til innflutnings og koma því til landsins. Ekki sé hlaupið að því að finna lambakjöt sem hafi verið 30 daga í frysti, en afnám frystiskyldu á innfluttu kjöti kemur ekki til framkvæmda fyrr en í byrjun nóvember:

„Tillaga nefndarinnar kemur of seint,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. „Það hefur legið fyrir vikum saman að það stefndi í skort á lambahryggjum, en afurðastöðvar hafa sagst eiga nóg og ráðuneytið látið þar við sitja. Nú, þegar stutt er í að skortur bitni á neytendum, kemur loks þessi ófullnægjandi tillaga frá nefndinni. Líklegasta niðurstaðan er sú að á næstu vikum verði skortur á lambakjöti og loks þegar tekist hafi að flytja kjöt til landsins verði sláturtíð í þann veginn að hefjast.“

Skortur hækkar verðið

Ólafur segir þetta mál dæmi um öfugsnúið landbúnaðarkerfi, þar sem hagsmunir neytenda séu ekki í fyrirrúmi:

„Innlendar afurðastöðvar hafa selt lambahryggi til útlanda í stórum stíl, á verði sem er miklu lægra en það sem innlendri verslun stendur til boða. Þannig er búinn til skortur, sem hefur orðið til þess að á undanförnum vikum hefur innlent kindakjöt hækkað í verði. Skorturinn býr að sjálfsögðu til þörf á innflutningi kjöts – sem afurðastöðvarnar telja annars vafasaman – en stjórnvöld hafa neitað að lækka tolla á innfluttu kindakjöti þannig að það sé á viðráðanlegu verði og innlenda framleiðslan hafi samkeppni. Þetta mál setur málflutning þessara hagsmunaaðila í landbúnaðinum um fæðuöryggi í afar sérstakt ljós. Þeir hafa beinlínis staðið í vegi fyrir því að hér sé nægilegt framboð á þessum eftirsóttu matvörum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir