Stjörnubarnið North West tekur skvísulætin á næsta stig en á myndinni hér fyrir neðan má sjá stúlkuna skarta nefhring. Myndin var tekin í 85 ára afmæli langömmu North litlu sem er sex ára og stillir sér glaðhlakkaleg upp meðal frænkna sinna, þeirra Kourtney, Penelope, Truth og Khloe sem birti myndina.
Ljóst er að frumburður Kim og Kanye ætlar að fullorðnast fljótt en móðir hennar sá sig samt knúna að taka fram að um gervihring væri að ræða.