Úrslit liggja nú fyrir í leiðtogakjöri breska Íhaldsflokksins og eins og fyrirsjáanlegt var bar Boris Johnson sigurorð af Jeremy Hunt. Boris Johnson er fyrrverandi borgarstjóri London og fyrrverandi utanríkisráðherra. Þetta þýðir að Boris tekur við af Theresu May sem forsætisráðherra en hún sagði af sér embætti vegna erfiðleika við útgöngu Breta úr ESB.
Tveir samningar sem Theresa May gerði við ESB um útgöngu Breta úr ESB voru kolfelldir á breska þinginu. Boris Johnson hefur verið í hópi þeirra sem vilja Breta út úr ESB. Hann hefur hvað eftir annað lýst því yfir að Bretar gangi út úr sambandinu í október með eða án samnings.
Meira en helmingsmunur var á frambjóðendunum en Boris fékk rúmlega 92.000 atkvæði á meðan Jeremy Hunt fékk aðeins ríflega 46.000.
Sjá nánar sjónvarpsumfjöllun á vef Sky News.