fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
Pressan

Ein milljón manna hefur tilkynnt þátttöku í „innrás“ á Area 51 – „Förum að sjá þessar geimverur“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 17. júlí 2019 06:00

Eru þær að hlusta?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samsæriskenningasmiðir hafa lengi haldið því fram að bandarísk stjórnvöld feli geimverur og fljúgandi furðuhluti í Area 51 í Nevada-eyðimörkinni. Nú hefur ein milljón manna skráð sig til þátttöku  í „innrás“ á svæðið þann 20. september næstkomandi til að sjá geimverurnar sem eru sagðar vera þar.

Viðburðurinn nefnist „Storm Area 51: They Can‘t Stop All Of Us“ og var hann stofnaður á Facebook. Í texta á síðunni segir að hittast eigi við Area 51 Alien Center til að samhæfa inngönguna á svæðið.

„Ef við hlaupum með naruto stíl getum við farið hraðar en byssukúlurnar þeirra. Förum að sjá þessar geimverur.“

Samkvæmt frétt Sky er naruto hlaupastíllinn sérstakur hlaupastíll Naruto Uzumaki sem er aðalhetjan í japönsku teiknimyndaseríunni Naruto. Hann hleypur með handlegginn fyrir aftan bak.

Líklegt má telja að fyrirhuguð „innrás“ á Area 51 sé grín en stofnandi viðburðarins er einna þekktastur fyrir að birta ýmislegt gamanefni á samfélagsmiðlum.

Bandarískir fjölmiðlar segja að bandaríski flugherinn viti af málinu en hafi ekki viljað tjá sig neitt um það.

Area 51 er um 200 km frá Las Vegas og er harðlokað svæði sem almenningur hefur engan aðgang að. Ströng gæsla er þar allan sólarhringinn. Svæðið hefur lengi verið vinsælt viðfangsefni samsæriskenningasmiða og áhugafólks um geimverur og fljúgandi furðuhluti.

Það er opinber stefna bandarískra stjórnvalda að tjá sig ekki um það sem fer fram á Area 51 þar sem það varði þjóðaröryggi. Það var meira að segja ekki fyrr en 2013 að stjórnvöld viðurkenndi að svæðið væri til. Það var ekki til að draga úr áhuga samsæriskenningasmiða og fleiri á svæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Brúðkaupinu slaufað og unnustinn í rusli – Verðandi brúður handtekin fyrir barnaníð

Brúðkaupinu slaufað og unnustinn í rusli – Verðandi brúður handtekin fyrir barnaníð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Auka tungl gæti verið á braut um jörðina – Vísindamenn telja sig vita hvaðan það kom

Auka tungl gæti verið á braut um jörðina – Vísindamenn telja sig vita hvaðan það kom
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kjúklingur og kókaín

Kjúklingur og kókaín
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakamál: Hvað varð um Allyzibeth? – Var að fara að birta óþægilegar afhjúpanir

Sakamál: Hvað varð um Allyzibeth? – Var að fara að birta óþægilegar afhjúpanir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þrjár konur smitaðar af HIV eftir „Vampírumeðferð“

Þrjár konur smitaðar af HIV eftir „Vampírumeðferð“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingur kemur með óvæntar upplýsingar um baðferðir fólks

Sérfræðingur kemur með óvæntar upplýsingar um baðferðir fólks