

Glæpagengi frá Portúgal ætlaði að græða vel í Madríd um helgina, þegar úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fór fram.
17 manna gengi mætti til borgarinnar en allir aðilar tengjast fjölskylduböndum. Þeir voru mættir til þess að selja kókaín.
Gengið treysti á að stuðningsmenn Liverpool og Tottenham myndu vilja fá sér kókaín í borginni.
Glæapgenginu tókst að selja vel af efninu sem þeir voru með, það sem hins vegar kom í ljós var, að þeir voru ekkert með kókaín. Þannig voru þeir að gabba stuðningsmenn Liverpool og Tottenham, sem gengu í gildruna.
Gram af „kókaíni“ kostaði 20 evrur hjá þeim, en þetta var bara hvítt duft. Allir aðilarnir voru handteknir.
Þessir 17 aðilar sem allir koma frá Portúgal, þurfa að mæta fyrir dómara í dag og verður refsað.