Edda Hermannsdóttir og Ríkharður Daðason urðu heitasta stjörnuparið á Íslandi vorið 2017. Edda var vel þekkt úr fjölmiðlum og starfaði hjá RÚV, systir Viktoríu og Evu Laufeyjar, sem einnig hafa starfað við fjölmiðla. En Edda skipti um vettvang og starfar nú sem samskiptastjóri Íslandsbanka. Nýlega útskrifaðist hún úr PMD-stjórnendanámi frá háskóla í Barcelona á Spáni.
Ríkharður var einn sigursælasti landsliðsmaðurinn í knattspyrnu á árunum í kringum aldamótin. Lék hann meðal annars með Viking í Stafangri, Lilleström og Íslendingaliðinu Stoke City. Skoraði hann frægt mark gegn Frökkum á Laugardalsvelli árið 1998. Ríkharður er sonur Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, fyrrverandi þingmanns og bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Hann er hagfræðingur að mennt og er fjárfestir.
Edda og Ríkharður eiga þrjú börn úr fyrri samböndum. Ríkharður fór á skeljarnar í brúðkaupi Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur og Hauks Inga Guðnasonar í Verona á Ítalíu sumarið 2018. Þau búa í glæsilegu einbýlishúsi í Laugardalnum.
Heimili:
Sunnuvegur 33
283 fm
Fasteignamat: 119.500.000 kr.
Edda Hermannsdóttir
Tekjublað 2018: 1.245.000 kr