,,Sá silfraði er mættur í Þverá og Kjarrá,“ sagði Ingólfur Ásgeirsson en laxinn er mættur í Þverá og Kjarrá í Borgarfirði. Nákvæmlega það sem veiðimenn hafa verið að bíða eftir. í Kjósinni hefur hann ennfremur sést og víða.
Veiðiárnar opna fyrr en venjulega í ár. Laxá í Kjós opnar 15. júní, Grímsá 19. júní og Laxá í Leirársveit 14. júní. Þessar opnanir er þó nokkuð fyrr á ferðinni en undanfarin ár. Fiskurinn er farinn að koma fyrr en hann gerði á tímabili og því er mælt með opnun ána fyrr en venjulega.
Norðurá opnar 4.júní og Blanda 5 júní. Ekki er ólíklegt að lax fari að sjást í Norðurá og jafnvel Elliðaánum á allra næstu dögum. Tíminn er allavega kominn.
Mynd. Lax landað í opnun Norðurá í fyrra á Eyrinni. Mynd María Gunnarsdóttir.